félagsleg undirboð og svik á vinnumarkaði.
Virðulegur forseti. Þetta er þörf umræða sem hv. þm. Oddný G. Harðardóttir bryddað upp á um málefni sem maður hefur á tilfinningunni að mætti vera ofar á baugi í samfélagi okkar og hefur ekki verið nógsamlega rætt, en verkalýðshreyfingin hefur af veikum mætti reynt að halda því á lofti.
Þetta er einn af hvimleiðum fylgifiskum alþjóðavæðingarinnar og minnir okkur á hversu nauðsynlegt er að sterk löggjöf ríki í hverju landi fyrir sig og að sterk verkalýðshreyfing nái að þrífast.
Svo eru náttúrlega séríslenskar útfærslur á þessu alþjóðlega böli, sem lýsa sér ekki síst í þrálátu kennitöluflakki. Það eru aðilar sem gerast brotlegir aftur og aftur, skipta svo um kennitölu og halda áfram uppteknum hætti óáreittir af yfirvöldum.
Verkalýðshreyfingin hefur barist gegn þessu og reynt að vekja athygli á þessu af veikum mætti. Við horfum um þessar mundir upp á kjaradeilu milli flugfélagsins Primera Air og flugfreyja. Þar hefur það gerst að fulltrúar flugfélagsins hafa ekki mætt á fjóra sáttafundi með sáttasemjara, sem er fáheyrð framkoma.
Það þarf ekki að hafa mörg orð um það, þetta veldur skekktri samkeppnisstöðu gagnvart þeim fyrirtækjum sem reyna að hlíta lögum. Útkoman er verri verk, verri þjónusta, verri kjör vinnandi fólks og verra samfélag.