148. löggjafarþing — 18. fundur,  30. jan. 2018.

félagsleg undirboð og svik á vinnumarkaði.

[14:44]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda fyrir að koma með þetta mál hér inn í þingsali. Þetta er mikilvægt og hefur í sjálfu sér verið margrætt.

Það er óþolandi að hagvöxtur þjóðarinnar og uppgangur í mörgum atvinnugreinum virðist byggjast á því að svínað sé á launafólki og að hér sé stundað vinnumansal. Það er líka ólíðandi fyrir atvinnugreinar, þ.e. atvinnurekendur í einstökum atvinnugreinum eins og landbúnaði, ferðaþjónustu, byggingariðnaði, að sitja undir því að menn í þessum greinum séu að skjóta sér undan því að borga fólki almennileg laun eða fari ekki eftir kjarasamningum. Það er náttúrlega ólíðandi að þessir aðilar skuli komast upp með þetta. Þetta skekkir samkeppnisstöðu. En það eru tvö fórnarlömb í þessu máli öllu. Það er í fyrsta lagi það ógæfusama fólk sem níðst er á hér á Íslandi með því móti sem við erum að fara yfir hér, hitt fórnarlambið er ríkissjóður sem verður af tekjum vegna þess að kennitöluflakkarar og óvandaðir menn í öllum þessum atvinnugreinum standa ekki skil á gjöldum vegna launa þess starfsfólks sem hjá þeim vinnur.

Nú veit ég að hæstv. ráðherra hefur nokkra reynslu af því að hafa í vinnu erlent verkafólk og hann þekkir þessi mál mjög vel. Hann er þess líka örugglega jafn fús og fýsandi og við að þeir sem ekki standa sig verði dregnir fram í dagsljósið og þeim hegnt. En þetta er ekki bara á færi eins ráðherra.

Ég fagna því að frumvörpin komi fram. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til þess að tala við tvo samráðherra sína í ríkisstjórn og hvetja þá til dáða með sér, t.d. hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, til að ráða nú þegar um 20 manns til skatteftirlits (Forseti hringir.) og iðnaðarráðherra til að koma fram loksins á Alþingi með kennitöluflakksfrumvarp, sem mig minnir að búið sé að vera í undirbúningi (Forseti hringir.) síðan árið 2013. Einhverjir þrír ráðherrar hafa heykst á því að koma með það mál inn í þingið. (Forseti hringir.) Ég held að væri rétt að blása til samstöðu í ríkisstjórninni og menn (Forseti hringir.) gyrði sig í brók og berji kjark hver í (Forseti hringir.) annan til að laga (Forseti hringir.) þessi mál.