félagsleg undirboð og svik á vinnumarkaði.
Herra forseti. Mig langar að nota seinni ræðu mína um þetta mál til að halda áfram að hvetja hæstv. félagsmálaráðherra til góðra verka í þessu efni. Þetta er eitt alvarlegasta vandamálið sem vinnumarkaðurinn er að glíma við á þessu ári. Þetta er algjörlega fyrirséður vandi, það er langt síðan farið var að ræða þetta og þess vegna er alveg gríðarlega mikilvægt að fyrrnefnt frumvarp komi sem fyrst til þingsins til umræðu. Ég held að það sé einmitt mjög mikilvægt að þingið fái góðan tíma til að fara yfir það, leita umsagna o.s.frv. Frumvarpið hefur verið drjúgan tíma í undirbúningi og ég held að því sé ekkert að vanbúnaði að koma með það hér inn.
En það eru fleiri þættir sem horfa þarf til. Það þarf að efla eftirlit verulega. Ríkisskattstjóri kvartar undan fjárskorti til að sinna eftirliti sem við vitum að virkar mjög vel. Hinar svokölluðu fyrirtækjaheimsóknir ríkisskattstjóra hafa virkað mjög vel í þessu samhengi.
Á síðasta ári var aukið fjármagn til bæði Vinnueftirlits og Vinnumálastofnunar til að sinna slíku eftirliti líka. Það er mikilvægt að halda áfram að byggja upp þann eftirlitsþátt. Við erum þjóð sem er að eldast. Við vitum að við munum í ríkara mæli en áður þurfa á erlendu starfsfólki að halda. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að við stöndum vel að öllum umbúnaði og réttindum þessa hóps, að fólk sem kemur hingað til starfa upplifi sig sem jafngilda samfélagsþegna í alla staði. Þetta er gríðarlega mikilvægt og þar er ekki bara nóg að tala um félagsleg undirboð því að eitt er hvort verið er að brjóta samninga og réttindi þessa fólks, sem er mjög alvarlegt, en við þurfum líka að horfast í augu við þá staðreynd að ein stærsta skýribreytan á launadreifingu á vinnumarkaði er uppruni. Við borgum fólki af erlendum uppruna mun lægri laun en öðrum á vinnumarkaði. Þá er ekki bara nóg að fólk fái laun samkvæmt kjarasamningum, við ætlum heldur ekki að borga þessum (Forseti hringir.) hópi einum berstrípaða taxta. Það skiptir gríðarlega miklu máli að fræða fólk um réttindi sín, að huga að því í alla staði að fólk sem kemur hingað til starfa, sem er gríðarlega mikilvægt fyrir íslenskt samfélag, upplifi full, jöfn réttindi í alla staði.