félagsleg undirboð og svik á vinnumarkaði.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir að taka þátt í þessari umræðu og hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég fagna því að til standi að koma aftur með frumvörpin, væntanlega þá betur unnin, inn í þingið, sem verið hafa í meðförum þriggja ríkisstjórna. Af umræðunni hér má ræða að þverpólitísk samstaða sé um að vinna þau hratt og vel. Ég vil einnig hvetja hæstv. ráðherra til dáða, eins og aðrir hv. þingmenn í umræðunni, og hvetja hann til að blása til sóknar innan ríkisstjórnarinnar vegna þess að þessi mál varða ekki aðeins ráðuneyti hans.
Herra forseti. Sem betur fer er mun algengara að fyrirtæki fari eftir kjarasamningum og virði lög og reglur, en þeim fer því miður fjölgandi sem svindla. Það verður að gera opinberum stofnunum kleift að taka á málunum og nýta þær heimildir sem þær þó hafa gangvart fyrirtækjum sem ekki standa sig. Fyrirtækin sjálf taka ekki mikla áhættu. Þau eru látin borga ef upp um þau kemst en síðan geta þau haldið áfram eins og ekkert sé. Mér var t.d. sögð saga af fyrirtæki með 30 starfsmönnum. Tveir starfsmenn stigu fram og kvörtuðu undan því að kjarasamningar væru ekki virtir. Viðbrögðin voru þau að fyrirtækið greiddi það sem upp á vantaði hjá þessum tveimur og rak þá svo í kjölfarið en hélt áfram að stela af hinum 28.
Félagslegt undirboð er glæpur sem kallar á skýr viðbrögð af hálfu stjórnvalda. Stjórnvöld og stofnanir, samtök atvinnulífsins og stéttarfélög verða að viðurkenna það í raun. Þau eru glæpur gagnvart fólki, bæði fjárhagslegur og félagslegur, og viðbrögðin eiga að vera í samræmi við það. Svik og svindl á vinnumarkaði er í fullkominni andstöðu við norræna módelið og norræna velferð (Forseti hringir.) sem byggir á trausti, virðingu, samstarfi, (Forseti hringir.) jafnrétti og jöfnuði.