148. löggjafarþing — 24. fundur,  8. feb. 2018.

mannvirki.

185. mál
[17:19]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um mannvirki, nr. 160/2010, með síðari breytingum. Frumvarpið var unnið í samvinnu við Mannvirkjastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga og hefur farið í gegnum opið kynningarferli og samráðsferli.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur á síðustu þremur árum unnið að breytingum á regluverki á sviði mannvirkjamála með það að markmiði að draga úr kostnaði við gerð mannvirkja og einfalda stjórnsýslu á því sviði. Hluti af þeirri vinnu fólst í víðtækum breytingum á byggingarreglugerð sem lutu einna helst að aðkomu- og umferðarleiðum sem og innri rýmum mannvirkja sem leiddu til aukins svigrúms við útfærslu hönnunar. Þetta var þó þannig úr garði gert að tryggt var að markmið mannvirkjalaga um að tryggja aðgengi fyrir alla væri áfram tryggt.

Þær breytingar sem gerðar hafa verið á byggingarreglugerðinni undanfarið, og ég fer ekki nánar út í hér, hafa haft það að markmiði að draga úr byggingarkostnaði. Grundvöllur þeirrar vinnu allrar er yfirlýsing ríkisstjórnar frá 28. maí 2015 um ráðstafanir til að greiða fyrir gerð kjarasamninga, sem hafði það m.a. að markmiði að lækka byggingarkostnað og einfalda stjórnsýslu við mannvirkjagerð. Frumvarpið er einnig hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í húsnæðismálum frá í júní 2017, auk þess sem það samræmist sáttmála núverandi ríkisstjórnar þar sem gert er ráð fyrir að stjórnsýsla vegna byggingarframkvæmda verði yfirfarin.

Við gerð þessa frumvarps var megináhersla lögð á einföldun stjórnsýslu vegna útgáfu byggingarleyfis og samþykktar byggingaráforma, einföldun eftirlits með iðnmeisturum og aukinn sveigjanleika, einföldun eftirlits á framkvæmdatíma, m.a. með því að innleiða aukið innra eftirlit í stað ytra eftirlits svo og að skoða fyrirkomulag eftirlits með gæðakerfum, einföldun stjórnsýslu vegna hönnunargagna og einföldun á reglum um byggingarstjóra. Auk þess eru lagðar til nokkrar breytingar í þeim tilgangi að skerpa á eða skýra frekar tiltekin ákvæði laganna.

Í frumvarpinu er lagt til að felld verði niður krafa um að séruppdrættir vegna mannvirkjagerðar og að ábyrgðaryfirlýsing stálvirkjameistara, blikksmíðameistara, málarameistara og veggfóðrarameistara þurfi að liggja fyrir við útgáfu leyfis. Eftir sem áður verður óheimilt að hefja þá verkþætti sem krefjast séruppdrátta án þess að þeir hafi verið samþykktir eða hefja þau verk sem krefjast aðkomu tiltekinna iðnmeistara án þess að fyrir liggi ábyrgðaryfirlýsingar þeirra.

Með þessu móti er þó ekki slegið af gæðakröfum heldur veittur ákveðinn frestur til að skila gögnum þar til þeirra er þörf. Hagkvæmnin felst í því að upphaf framkvæmda getur hafist fyrr en ella, sem dregur úr kostnaði við framkvæmdir. Jafnframt er sparnaður fólginn í að eiga möguleika á að ljúka verki fyrr en ella. Þá er kostnaði vegna hönnunarvinnu dreift á framkvæmdatíma sem getur einnig leitt til lækkunar kostnaðar og verksparnaðar að ekki þurfi að ráða og skrá umrædda iðnmeistara á verk fyrr en kemur að þeirra verkþætti.

Í frumvarpinu er aukin áhersla lögð á innra eftirlit hönnuða og iðnmeistara og skráningu niðurstaðna eftirlits í gæðastjórnunarkerfi, auk þess sem aukin áhersla er lögð á gæðastjórnun og ábyrgð byggingarstjóra og hönnunarstjóra. Lagt er til að meginreglan verði sú að byggingarstjóri annist áfangaúttektir í stað leyfisveitanda og að úrtaksskoðanir verði framkvæmdar af leyfisveitanda eða skoðunarstofu. Einnig er lagt til að byggingarstjóri geti í sérstökum tilvikum veitt öðrum umboð vegna úttekta. Markmiðið með þeim breytingum er að stuðla að skilvirkni og einfalda stjórnsýsluna, bæði við yfirferð hönnunargagna sem og opinbert eftirlit á framkvæmdatíma.

Með því að færa innra eftirlit, aðallega gerð áfangaúttekta og skráningu gagna, í hendur byggingarstjóra er ekki dregið úr gæðum eftirlits. Þess í stað er ætlunin sú að opinberir eftirlitsaðilar leggi megináherslu á virkt eftirlit þar sem mest þörf er á, þ.e. með þeim aðilum sem hafa ekki uppfyllt kröfur í úrtaksskoðunum eða þegar gæðastjórnunarkerfi þeirra uppfyllir ekki gerðar kröfur.

Með aukinni áherslu á innra eftirlit til byggingarstjóra er unnt að koma í veg fyrir afleiddan kostnað vegna opinbers eftirlits. Framkvæmdaraðilar þurfa ekki að bíða eftir úttekt leyfisveitanda til þess að geta haldið áfram með framkvæmdir með tilheyrandi kostnaði. Þá er einnig lagt til að umboðsmaður byggingarstjóra geti verið viðstaddur úttektir fyrir hönd byggingarstjóra, svo sem vegna veikinda eða fría, sem getur komið í veg fyrir tafir og kostnað sem því fylgir.

Í frumvarpinu er lagt til að krafa um faggildingu leyfisveitenda vegna áfangaúttekta verði felld niður í ljósi þess að í frumvarpinu er gert ráð fyrir að byggingarstjórum verði falið það verkefni að meginstefnu til. Sú breyting leiðir einnig til lækkunar á kostnaði.

Að lokum er með frumvarpinu skerpt á ákvæðum um eftirlitshlutverk Mannvirkjastofnunar með störfum hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara án þess að þar sé um efnisbreytingu að ræða, auk þess sem lagastoð er treyst frekar vegna minni háttar framkvæmda sem eru tilkynningaskyldar samkvæmt ákvæðum byggingarreglugerðar.

Virðulegur forseti. Ég hef rakið meginefni frumvarpsins. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.