sálfræðiþjónusta í opinberum háskólum.
Virðulegi forseti. Ég hef gegnum þau samtök sem ég hef komið að undanfarin ár kynnst þessum sjúkdómi sem tengist geðheilbrigði og einnig á öðrum vettvangi. Það sem mér finnst eiginlega sárast í þessu er til þess að vita að maður hefur misst vini í sjálfsvíg vegna þess að það er ekki nóg eftirfylgni, vegna þess að kerfið er að spara peninga. Ef við ætlum okkur að sjá til þess að ungmenni þessa lands fái þá heilbrigðisþjónustu sem þau eiga rétt á þá er þetta lítið skref til þess að byrja með. Byrjum þarna. En þetta verður bara smáskref til þess að koma þessum hlutum í lag. Það er ekki ásættanlegt að það sé svo mikill kostnaður í þessu kerfi að fólk hafi ekki efni á því að leita hjálpar. Hitt er líka að það eru um 13 þús. einstaklingar í Háskóla Íslands og það er hálft stöðugildi sem á að sjá um geðheilsu þeirra.
Við verðum að gera eitthvað í þessum málum strax vegna þess að það er talið að um 30 manns deyi í sjálfsvígum á ári. Mér sýndist á tölunum að það væru um sex ungmenni á þeim aldri sem væri sennilega hægt að tengja eitthvað við háskólanám. Bara eitt af þeim er miklu meira en nóg. Þess vegna verðum við að sjá til þess að allir fái þá læknisþjónustu og þá geðheilbrigðisþjónustu sem þörf er á. Þetta er bara eitt lítið skref til þess.