148. löggjafarþing — 25. fundur,  19. feb. 2018.

varamenn taka þingsæti.

[15:04]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá 11. þm. Suðvest., Ólafi Þór Gunnarssyni, um að hann geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Eins og tilkynnt var um á vef Alþingis tók því sæti á Alþingi mánudaginn 12. febrúar sl. 1. varaþingmaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Una Hildardóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.

Jafnframt hefur borist bréf frá Þórunni Egilsdóttur, 4. þm. Norðaust., um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Þórarinn Ingi Pétursson. Hann hefur sömuleiðis tekið sæti áður á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.