sala á hlut ríkisins í Arion banka.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er mikilvægt að fá tækifæri til að skýra það sem hv. þingmaður kallar sölu á hlut ríkisins í Arion banka en snýst í raun og veru um þá ákvörðun stjórnar Kaupskila að óska eftir því að virkja kaupréttarákvæði.
Eins og hv. þingmanni er væntanlega kunnugt um stafar kauprétturinn af því hluthafasamkomulagi sem gert var árið 2009 í tíð Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingarinnar þar sem kaupréttarákvæðið var sett inn í hluthafasamkomulag. Þegar ríkið ákvað að setja framlag inn í Arion banka upp á 9,8 milljarða kr. var kaupréttarákvæðið sett inn, en það snýst um að þessi aðili getur kosið að kaupa ríkið út úr Arion banka hvenær sem er, þ.e. kauprétturinn er fortakslaus. Honum má ekki rugla saman við forkaupsrétt, sem hefur líka verið töluvert til umræðu í þessum sal.
Ég ætla að leyfa mér að rifja upp að þessi atburðarás á rætur að rekja til 2009 þegar við vorum að reyna að læra af hruninu og eftirmálum þess. Þá var sömuleiðis ákveðið að setja á laggirnar stofnun, Bankasýslu ríkisins, til þess að tryggja að um eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum væri sýslað í sérstakri stofnun. Að þar væru ákveðin armslengdarsjónarmið viðhöfð þannig að stjórnmálamennirnir stæðu ekki sjálfir fyrir sölu í bönkum með beinum hætti.
Ég vil rifja það upp að það er Bankasýslan sem hefur farið með þennan eignarhlut. Það er hennar að meta núna hvort ákvæði hluthafasamkomulagsins frá 2009 gildi, sem síðar var fest í lög af þáverandi fjármálaráðherra í lögum frá 2012, um sölu á hlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Þar er sérstaklega kveðið á um að fari svo að kaupréttarákvæði sé virkjað þá gildi ekki hefðbundin þingleg meðferð um sölu eignarhluta frá ríkinu. Mér finnst mjög mikilvægt í svari við fyrirspurn hv. þingmanns að það sé rifjað upp því að mér hefur þótt vera nokkur misbrestur á því að það hafi komið fram í umræðunni.