skilyrði fyrir gjafsókn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Gjafsókn hefur vissulega verið mjög til umræðu síðustu misserin í tengslum við ýmis mál. Hv. þingmaður nefnir hér mál sem eru oft til umfjöllunar hjá dómstólum, sem eru svokölluð tryggingamál, slysamál og annað. Það er rétt sem hv. þingmaður nefnir, miðað er við afskaplega lágar fjárhæð, það verður alveg að viðurkennast. Miðað er við verulega lágar tekjur þess sem óskar eftir gjafsókn. Þó er líka sett fram skilyrði sem rutt getur tekjuviðmiðinu úr vegi, þ.e. ef málið þykir þannig vaxið að það hafi verulega almenna þýðingu fyrir allan almenning. Ef það hefur almenna þýðingu kemur til greina að líta fram hjá hinum þröngu tekjumörkum.
Ég er að láta skoða það núna hvort ekki sé tími til kominn að endurskoða þessi fjárhæðarmörk sérstaklega. Mér þykir líka alveg fullt tilefni til þess að huga aðeins að fyrirkomulagi þessara mála sem eru oft keimlík, eins og t.d. slysamálin sem menn hafa reynt að ná sáttum um við tryggingafélög. Það væri auðvitað æskilegast ef hægt væri að leysa þessi mál með öðrum hætti en fyrir dómstólum.
Ég get upplýst það hér að gjafsóknarheimildir verða endurskoðaðar á næstunni, þá einkum og sér í lagi fjárhæðarmörkin.