frelsi á leigubílamarkaði.
Virðulegi forseti. Það er fínt að taka umræðu um þessi mál í ljósi breyttra aðstæðna, breyttrar tækni. Nauðsynlegt er að gera breytingar á þessu fyrirkomulagi eins og svo mörgu öðru í samfélagi okkar. Eins og kom fram hjá hæstv. ráðherra munum við líka þurfa að gera það út af þeim samningum sem við erum bundin af við Evrópuþjóðir.
Það þarf að vanda undirbúninginn. Það þarf að fara vel ofan í þetta mál og er þá tilgangslítið að leggja fram þá þingsályktunartillögu sem hv. þingmaður vitnaði til vegna þess að málið er í skoðun, það er í faglegum farvegi. Farið var í þá vinnu af ríkisstjórn sem hv. þingmaður átti aðild að og hefur væntanlega verið vel kunnugt um. Ég held að mikilvægt sé að láta þá vinnu klárast og þá getum við séð hverjar eru bestu leiðirnar. Við getum tekist á um það í framhaldi af þeirri vinnu hvaða leið er best að fara. Ég bíð spenntur eftir að sjá hvað kemur út úr því.
Það er svo aftur áhugavert að fylgjast með því að þingmenn Viðreisnar eru svolítið uppteknir af því að vera hér í ákveðnum frelsismálum sem eiga kannski flest uppruna sinn í Sjálfstæðisflokknum, eins og þetta mál til að mynda. Og nú sé ég að hv. þingmaður Viðreisnar er að leita eftir meðflutningsmönnum á afnámi einkasölu ÁTVR í verslunum. Sá hinn sami hefur flutt frumvarp um að leggja niður mannanafnanefnd, mál sem dómsmálaráðherra þess tíma hjá Sjálfstæðisflokknum var lagður af stað með. Ég held að þessi misskildi ágreiningur um hvort við eigum að ganga í Evrópusambandið eða ekki ætti ekki að standa í vegi fyrir að þessir hv. þingmenn og góðu vinir mínir kæmu bara heim til sín aftur. (Gripið fram í.)