frelsi á leigubílamarkaði.
Herra forseti. Ég vil þakka fyrir þessa góðu umræðu og það er ánægjulegt líka að heyra bæði núverandi ráðherra og fyrrverandi ráðherra lýsa áhuga sínum á að endurskoða þetta fyrirkomulag. Mér finnst að við eigum að velta fyrir okkur nokkrum einföldum grundvallaratriðum í þessu. Skortur hækkar verð. Það er regla númer eitt. Með því að halda hámarksfjölda leyfa niðri hækkum við verðið á þjónustunni sem ella er veitt. Það er einfalt. Þetta á við á öllum mörkuðum sem við störfum á. Það eru engin rök fyrir hið opinbera að stýra framboði á þessari þjónustu frekar en einhverri annarri.
Við búum við frjálsa, óhefta samkeppni á svo mörgum öðrum mörkuðum sem eru miklu fjármagnsfrekari, erfiðari að komast inn á o.s.frv. Þeir hafa tilhneigingu til að ná jafnvægi af sjálfsdáðum í framboði og eftirspurn. Ég held að ríkið eigi ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því eða stilla löggjöf í hóf.
Varðandi svarta starfsemi skulum við hafa vel í huga að núverandi fyrirkomulag skorts hefur búið til umfangsmikla svarta atvinnustarfsemi á þessu sviði sem er algerlega óregluð. Það er líka annað sem er ágætt að velta fyrir sér þegar rætt er um öryggi og annað þess háttar að þeir sem hafa kynnt sér þjónustu á borð við Uber og fleiri vita að þar er vel skráð hvaða bílstjóri flytur hvaða farþega hvaðan og hvert. Það er talsvert mikið öryggi. Við höfum heyrt umræðu erlendis um að konur kjósi t.d. frekar að nýta sér þjónustu þessara fyrirtækja en hefðbundinna leigubíla einfaldlega af því að þeim sé minni hætta búin í því umhverfi. Öryggið er líka til staðar í þessu.
Auðvitað eigum við að hafa reglur um alla starfsemi sem við viljum tryggja að sé faglega unnin. Við gerum kröfur til bílstjóra, hvaða hæfi þarf að uppfylla o.s.frv. En ruglum því ekki saman við þá almennu takmörkun á frjálsri samkeppni sem við erum með í gildi í dag einfaldlega með því að setja þak á heildarfjölda starfsleyfa og hvaðan skuli starfað. Það er alger óþarfi. Þetta er barn síns tíma. Það er löngu tímabært að breyta þessu.