frelsi á leigubílamarkaði.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir að taka þetta mál á dagskrá og hefja þessa umræðu. Hún kemur vel inn í tímasetninguna og það starf sem unnið er í ráðuneytinu, það kom fram í máli hæstv. ráðherra. Það er óhjákvæmilegt, bæði út frá stöðu mála og þeirri þróun sem átt hefur sér stað, að bæta umhverfi leigubifreiða. Frelsi er æskilegt, getum við sagt. Út frá hagfræðisjónarmiðum er það til bóta þar sem því verður komið við.
Ég vil taka undir með hv. þingmanni, að allt sem snýr að þróuninni, auknum umferðarþunga, umhverfissjónarmiðum, sveiflukenndri eftirspurn, gæðum til þeirra sem njóta þjónustunnar er mjög mikilvægt og kemur inn í umræðuna. Fram kom í máli hæstv. ráðherra að ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, hóf frumkvæðisathugun á þessum markaði á Íslandi í upphafi síðasta árs vegna þess sem hér hefur verið rætt um, fyrirkomulags sérleyfa, og annarra aðgengishindrana á markaði. Í kjölfar niðurstöðu ESA vegna slíkra mála í Noregi um ólögmætar takmarkanir var settur á fót starfshópur. Það verður ekki bara fróðlegt og gagnlegt heldur er það algerlega óhjákvæmilegt og nauðsynlegt fyrir okkur í framhaldinu að fá þessa skýrslu til umræðu með það að markmiði að bæta regluverkið.
Þetta hefur verið að gerast í löndunum í kringum okkur. Við tökum auðvitað mið af því hvernig það fer og bætum svo regluverkið, sem er nauðsynlegt.