148. löggjafarþing — 25. fundur,  19. feb. 2018.

frelsi á leigubílamarkaði.

[16:30]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Aðeins um þær reglur sem við höfum viðhaft við úthlutun leigubifreiðaleyfa. Ég tel að þær reglur hafi gefið góða raun. Aðferðin er sanngjörn vegna þess að þeir sem virkilega vilja stunda þessa atvinnu geta auðveldlega hafið akstur, svo sem í afleysingum. Annað atriði sem má nefna varðandi þetta fyrirkomulag er hversu auðvelt það er að sía út þá sem ekkert erindi eiga í þetta starf. Það er mjög mikilvægt.

Í samtölum mínum við forsvarsmenn Bifreiðastjórafélagsins Frama kom skýrt fram að margoft hafa menn verið stöðvaðir á vegferð sinni til þess að öðlast leyfi þar sem komið hefur í ljós að það er engum til hagsbóta, ekki viðkomandi, ekki stéttinni og alls ekki viðskiptavininum. Við verðum að virða þetta fyrirkomulag og við hljótum að hafa áhyggjur af því að hver sem er geti fengið leyfi án þess að gætt sé að því hvort viðkomandi sé hreinlega hæfur til þess.

Tillaga hv. þm. Hönnu Katrínar Friðriksson gerir ráð fyrir því að starfsstöðvar leigubifreiða heyri sögunni til enda er það eðli fyrirtækja á borð við Uber að hafa enga starfsstöð. Það að leggja niður stöðvaskyldu er áhættusamt. Eftirlitsskyldan yrði öll erfiðari, mikilvægt er að geta vísað í tiltekna starfsstöð ef eitthvað kemur upp á og þarfnast skoðunar. Auk þess hafa starfsstöðvarnar sinnt mikilvægri upplýsingagjöf til lögreglu, gerist þess þörf, og leyst ágreining á milli bifreiðastjóra og viðskiptavinar. Með því að leggja niður stöðvaskyldu tapast mikilvæg þekking.

Ég vil víkja aftur að reynslunni sem Svíar hafa haft af því að opna þennan markað. Hún var það slæm að ferðamönnum sem komu til Svíþjóðar var ráðlagt að fara mjög varlega í að taka leigubifreiðar vegna þess að leigubílstjórar voru uppvísir að svikum og hreinu (Forseti hringir.) og beinu ofbeldi.

Ég (Forseti hringir.) vil kannski nefna það í lokin að það er ekki ódýrt að taka leigubifreið á Íslandi, ég veit það, en það eru leiðir til þess að lækka fargjöldin (Forseti hringir.) með því að lækka kostnað og gefa t.d. leigubifreiðastjórum og leigubifreiðum heimild til þess að kaupa ódýrara eldsneyti eins og litaða olíu.