lögheimili.
Herra forseti. Undir þessum lið hafði ég hugsað mér að spyrja hæstv. ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála um þingsályktunartillögu sem fyrst var mælt fyrir á 144. löggjafarþingi, eða á þinginu sem starfaði á árinu 2014–2015, og var síðan samþykkt á Alþingi 7. september 2016. Sú þingsályktunartillaga snýst um að hjón geti átt lögheimili hvort á sínum staðnum. Þingið fól ráðuneytinu og ráðherra að leggja fram á Alþingi frumvarp til nýrra laga um lögheimili byggt á þeim tillögum eigi síðar en 30. mars 2017. Nú er 19. febrúar 2018 og þess vegna fannst mér tími til kominn að spyrja hvað væri að frétta, hvort frumvarpið væri ekki að koma inn í þingið.
Það undarlega gerðist í morgun, herra forseti, að hæstv. ráðherra svaraði spurningunni á Facebook-síðu sinni. Að vísu gleymdi hann að láta vita eða ákvað að láta það líta þannig út að honum hefði sisvona dottið þetta í hug sjálfum. Enda fékk hæstv. ráðherra mikið hrós fyrir frá þeim sem komu síðan inn á síðuna og fögnuðu þeim framsæknu lögum sem hann ætlaði að mæla fyrir í mars. Þetta fannst mér mjög merkilegt.
Ég spyr: Hver þarf Alþingi sem hefur Facebook?
Stuttu seinna, rétt eftir að hæstv. ráðherra hafði birt þessa færslu á Facebook-síðu sinni, kom frétt á RÚV um það sem væri að fara að gerast, um frumvarp sem hæstv. ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála hygðist leggja fram.
Mér finnst mikilvægt að það komi fram hér að Alþingi hafði falið ráðuneytinu og ráðherra þessara mála að leggja fram frumvarp um þetta eigi síðar en 30. mars 2017 og nú 19. febrúar 2018 er ekkert komið, en samkvæmt færslu á Facebook-síðu hæstv. ráðherra er von á slíku frumvarpi í mars.
Í nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar, sem fjallaði um málið á sínum tíma, var þó ýmislegt annað dregið fram sem ekki fást svör við á Facebook-síðunni. Það er til dæmis um börn hjóna, hvort börn geti átt lögheimili hvort á sínum staðnum, hvort sem það eru börn hjóna eða börn (Forseti hringir.) fráskilinna hjóna. Ég vil þá biðja hæstv. ráðherra um að koma inn á það mál þar sem (Forseti hringir.) ég er búin að fá svör við því að frumvarp um lögheimili hjóna kemur fram í mars.