lögheimili.
Herra forseti. Ég þakka ráðherra fyrir þau svör sem hann veitti. Ég kem hingað upp einmitt til að ræða börn og möguleika barna á að hafa tvöfalt lögheimili. Það kom fram í máli ráðherra að lagalega væri það ekki hægt. Hér fjallaði ráðherra um að taka þyrfti ákvörðun um það, séu hjón í hjúskap eða sambúð, hjá hvoru foreldri barnið skuli hafa lögheimili og hvoru aðsetur. Ég velti fyrir mér hvort ráðherrann hafi alveg misst af þeirri umræðu sem hefur verið mjög hávær undanfarin ár, þ.e. þessu réttlætismáli, þegar barn býr hjá báðum foreldrum sínum sem eru fráskilin eða hafa slitið sambúð, að barnið geti haft lögheimili á báðum stöðum. Ég átta mig ekki alveg á því hafandi starfað í þessum málaflokki lengi hvað varðar (Forseti hringir.) börn og hjónaskilnaði af hverju það er lagalega ekki hægt.