148. löggjafarþing — 25. fundur,  19. feb. 2018.

vegþjónusta.

154. mál
[17:13]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa umræðu. Varðandi það sem hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir kom inn á með eftirlitið er áhættumati beitt. Það er tíðara á höfuðborgarsvæðinu en annars staðar. En það er gert með mjög nákvæmum hætti. Verktakar þurfa til að mynda að sýna fram á virkni tækja með því að vigta það magn sem numið er af vegum svo að samræmi sé á milli stjórnbúnaðar og vinnuvélar. Einnig er kannað hvort nægilega sé rutt og hvort hægt sé að fara nær stikum og hvort þörf sé á að fjarlægja efni þannig að síður skafi á veginn aftur og slíkt. Öllu þessu er nú sinnt.

Ég held að ég geti fullyrt að menn reyni eftir þörfum að hafa þetta í takti við þarfir atvinnulífsins og heimilanna, til að koma börnum í skóla og fólki í vinnu. Það er rétt, sem kom fram hjá hv. málshefjanda Líneik Önnu Sævarsdóttur, að við höfum séð gríðarlega breytingu á síðustu árum. Bæði eru vinnusóknarsvæði stærri, þ.e. fólk sækir gjarnan vinnu um lengri veg en áður, en umferð eykst ekki síður vegna ferðamanna. Þess vegna höfum við verið að sjá þessar ævintýralegu tölur um aukningu.

Það var vissulega gott að geta brugðist við og Vegagerðin brást vel við þeirri beiðni minni að auka vetrarþjónustuna í byrjun ársins. Við höfum hins vegar ekki getað komið í veg fyrir öll þau vondu veður sem geisað hafa síðastliðinn hálfan mánuð, því miður, og kannski er enga vetrarþjónustu hægt að veita á slíkum köflum. Það hefur hins vegar orðið til þess að kostnaður Vegagerðarinnar hefur verið 35 milljónir á dag frá áramótum.

Við þurfum meira fé í þennan málaflokk til að geta staðið betur undir vetrarþjónustunni. Það er einn liður. Nýframkvæmdir eru eitt, viðhald mannvirkja annað en þjónustan, þar með talin vetrarþjónustan, mun taka meira fé til sín en hún hefur gert á liðnum árum.