störf þingsins.
Hv. forseti. Ég ætla að ræða húsnæðismál en fyrst vil ég byrja á því að þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir að beina athygli okkar að málefnum Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands. Við köllum oft eftir áliti hennar og þekkingu, við þekkjum það hér. Það er rétt að Siðfræðistofnun hefur ekki beinar fjárveitingar á fjárlögum heldur reiðir sig á hugvísindasvið Háskóla Íslands og sértekjur en það er sjálfsagt mál að skoða tekjuöflunarmódel Siðfræðistofnunar út frá stöðu hennar.
Að húsnæðismálum, virðulegi forseti, ég ætla að ræða hlutverk Íbúðalánasjóðs. Það er af sem áður var þegar deilt var um samkeppnisinngrip eða rætt um að staða Íbúðalánasjóðs væri tvísýn og verið að slást um tilvist sjóðsins á vettvangi þingsins. Sjóðurinn hefur í dag afar mikilvægt samfélagslegt hlutverk með höndum. Að veita lán á félagslegum forsendum, að veita stofnframlög til leiguheimila fyrir almenning, halda utan um skipulag húsnæðismála og eiga samstarf við sveitarfélögin þar um, fylgjast með þróun leigumarkaðar og annast framkvæmd húsnæðisbóta.
Þess utan ber Íbúðalánasjóði að standa fyrir rannsóknum á húsnæðismarkaði og styðja þannig við stefnumótun stjórnvalda. Það er ljóst að við þurfum í dag á sameiginlegu átaki að halda með öllum ráðum og tækjum og þar með talið Íbúðalánasjóði, sveitarfélögunum og byggingaraðilum til þess að mæta þeirri gríðarlegu þörf sem er til staðar á uppbyggingu húsnæðis.
Í nýrri skýrslu hagdeildar Íbúðalánasjóðs sem tekin var til sérstakrar umræðu hér á dögunum, kemur þessi skortur glögglega fram.
Virðulegi forseti. Hér þarf sameiginlegt, víðtækt átak og ég horfi til þess að með breyttu hlutverki sjóðsins megi efla samráðsvettvang ríkis og sveitarfélaga.