148. löggjafarþing — 26. fundur,  20. feb. 2018.

störf þingsins.

[14:01]
Horfa

Adda María Jóhannsdóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir að nefna samgönguáætlun eða öllu heldur skort á henni. Ég kýs að nýta þennan vettvang til að gera slíkt hið sama og vekja sérstaklega athygli Alþingis á þeirri stöðu sem blasir við á Reykjanesbraut þar sem hún liggur í gegnum Hafnarfjörð.

Þetta er þjóðvegur, þjóðbraut, sem liggur til og frá alþjóðaflugvelli landsins og eina leiðin inn á höfuðborgarsvæðið. Umferðarþungi hefur stóraukist á undanförnum árum, bæði vegna uppbyggingar á nýjum hverfum í Hafnarfirði, sem ekki sér fyrir endann á, og vegna stóraukins straums ferðamanna sem haft hefur gífurleg áhrif á umferðarþróun, að ógleymdum þeim fjölda fólks sem ferðast á milli vegna atvinnu.

Í úttekt sem liggur til grundvallar drögum að umferðaröryggisáætlun fyrir Hafnarfjarðarbæ kemur fram að umferðarmagn á Reykjanesbraut í gegnum Hafnarfjörð hefur aukist um rúmlega 50% frá árinu 2010. Er áætlað að nú fari þarna yfir 45 þús. bílar að meðaltali á degi hverjum.

Í sömu úttekt kemur einnig fram að alvarlegustu umferðarslysin í Hafnarfirði verða á og við Reykjanesbraut, 42% allra umferðarslysa í sveitarfélaginu á árunum 2010 til 2016 urðu á götum sem eru í eigu Vegagerðarinnar. Brýnast er að ljúka tvöföldun á kaflanum frá Kaldárseli að gatnamótum við Krýsuvíkurveg, en ekki er síður mikilvægt að gera endurbætur á tvennum gatnamótum á vegarkaflanum frá Kaplakrika að Lækjargötu. Gert er ráð fyrir bráðabirgðaframkvæmdum við þau gatnamót en öllum er ljóst að þær duga ekki til. Því er mikilvægt að huga strax að framtíðarlausn á þessum gatnamótum sem eru meðal slysamestu gatnamóta höfuðborgarsvæðisins.

Herra forseti. Það þarf að marka heildarstefnu fyrir framkvæmdir við Reykjanesbraut innan Hafnarfjarðar þar sem tímasetningar verða ákveðnar og fjármagn tryggt. Ég kalla eftir samgönguáætlun. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)