148. löggjafarþing — 26. fundur,  20. feb. 2018.

mál frá ríkisstjórninni.

[14:05]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Í gær var ekkert stjórnarmál á dagskrá. Það er kannski eðlilegt þar sem mánudagar eru yfirleitt fyrirspurnadagar í þinginu. Í dag er eitt þingmál frá ríkisstjórninni og það er leiðrétting á lögum. Af því sem útbýtt var í dag er ekki eitt einasta stjórnarþingmál. Gert var ráð fyrir að einhver mál yrðu frá stjórninni á fimmtudaginn en við fáum ekki að sjá á þau spil. Kannski verður aðeins eitt mál frá ríkisstjórninni þessa viku í þinginu og það er leiðrétting á mistökum sem gerð voru við lagasetningu.

Herra forseti. Nú má vera að ástæðan sé verkleysi ríkisstjórnarinnar, verkkvíði stjórnarþingmanna eða að það taki of langan tíma að sætta sjónarmið, en við þingmenn getum ekki farið út í það hér. En ef stjórnarmálin eiga síðan að hrúgast inn í lok þings þá hefur það áhrif á störf okkar. Ég vil biðja hv. forseta að ganga í þetta mál og sjá til þess að hér komi stjórnarþingmál inn jafnt og þétt en hrúgist ekki inn í lok tímabilsins.