148. löggjafarþing — 26. fundur,  20. feb. 2018.

meðferð sakamála.

203. mál
[14:29]
Horfa

dómsmálaráðherra (Sigríður Á. Andersen) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er eins og oft áður að hv. þingmenn spara ekki gífuryrðin og stóryrðin í ræðum í þessum stól. Hér er talað um stórkostlegt klúður og mistök og ekki hafi verið heimild til að innheimta sakarkostnað. Af ræðu hv. þingmanns verður ekki annað ráðið en hann vaði villu og svíma um frumvarpið sem hér er til umræðu, um eðli sakarkostnaðar og lagaheimildar til innheimtu sakarkostnaðar.

Í XXXVI. kafla laga um meðferð sakamála, m.a. í 233. gr. og 235. gr., er kveðið á um skyldu til að greiða sakarkostnað. Sakarkostnaður fellur á sakborning sé hann sakfelldur fyrir dómi. Það hefur ekkert breyst.

Ákvæði það sem hér féll niður er eingöngu til ívilnunar fyrir sakborning, það felur í sér skyldu ríkisins til þess að leggja út fyrir sakarkostnaði, tímabundið, en einnig heimild til þess að fella niður sakarkostnað við ákveðnar aðstæður. Þetta ákvæði og lögin sem hv. þingmaður vísar til, lög nr. 49/2016, tóku ekki gildi fyrr en núna um áramótin og lög um meðferð sakamála voru ekki uppfærð með þessum breytingum fyrr en nú um áramótin. Það hefur enginn orðið fyrir nokkru tjóni af þessu, allra síst ríkissjóður, vegna þess að ef þetta ákvæði kemst ekki aftur inn í lögin, ef þetta frumvarp verður ekki samþykkt, þá mun ríkissjóður einn hafa fjárhagslegan hag af því en ekki sakborningar. Mér heyrist hv. þingmaður misskilja eitthvað eðli og tilgang þessa lagafrumvarps.