148. löggjafarþing — 26. fundur,  20. feb. 2018.

meðferð sakamála.

203. mál
[15:03]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson fór ágætlega yfir málið. Kannski er mikilvægast í því samhengi að greinilega hefur myndast ákveðin hefð fyrir villum, að mistök eigi sér stað. Það er vissulega mannlegt og ágætt að við reynum að bregðast við mannlegum afglöpum með því að koma okkur upp betri verkferlum og taka mark á tillögum sem koma frá fólki sem hefur innsýn í hlutina og hvernig þeir gætu farið betur.

Ég ætla ekki að rekja það neitt frekar. En í orðaskiptum mínum við hæstv. dómsmálaráðherra áðan gætti ákveðins hroka af hálfu hæstv. dómsmálaráðherra sem mér þótti ekki tilefni til, sér í lagi í ljósi þess sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson rakti hér áðan um margvíslegar leiðréttingar sem þurft hefur að gera. Og einmitt í því ljósi er kannski ástæða til að slá af hrokanum og koma frekar með uppbyggilegt og jákvætt viðhorf gagnvart þessu máli og einhverjar tillögur að lausnum.

En úr því að ég er að mati hæstv. dómsmálaráðherra ráfandi í villu og svíma langar mig til að gera aðeins grein fyrir skilningi mínum á því hvernig þetta mál allt saman lítur út. Og kannski verður það leiðrétt. Nú er rétt að taka fram að þó svo að ég sé ráfandi í villu og svíma þá er ég ekki einu sinni lögfræðingur. En ég er þó læs, herra forseti. Ég hef til að mynda lesið greinar 240 og 241 í gildandi lögum um meðferð sakamála. Það er vissulega rétt hjá hæstv. dómsmálaráðherra að til er heimild í þeim ákvæðum um að beita sektum. Gott og vel. En vandinn sem komið hefur í ljós og er tilefni þess að þetta frumvarp þarf að fara í gegn, er að það vantar leið til innheimtu í þeim tilfellum þar ákveðnir hlutir gerast.

Ég les úr 2. gr. frumvarpsins, með leyfi forseta:

„Lagt skal út fyrir sakarkostnaði úr ríkissjóði. Sakarkostnaður sem sakfelldum manni er gert að greiða samkvæmt dómi, úrskurði eða viðurlagaákvörðun skal innheimtur hjá honum, eftir atvikum með fjárnámi og nauðungarsölu. Skal hann bera kostnað af þeim aðgerðum, svo og aðgerðum vegna fullnustu refsingar og annarra viðurlaga á hendur honum, til viðbótar sakarkostnaði.“

Og þetta er bara 2. málsgreinin í þessari grein.

Ég myndi ætla að þetta væri frekar mikilvæg grein. Án hennar er ekki heimild til að fara í fjárnám eða nauðungarsölu nema kannski á grundvelli einhverra annarra laga sem ég þekki ekki. En ef slík lagagrein er til, til hvers erum við þá að þessu? Það er alveg ljóst að upp koma tilfelli, kannski eitt af þeim 82 sakamálum sem dæmt hefur verið í síðan 1. janúar, þar sem einhver greiðir ekki sekt eða sakarkostnað og lætur ganga á eftir sér. Án þessarar heimildar er það bara ekki hægt.

Þá kemur upp sú spurning sem ég spurði áðan: Úr því að það stendur í greinargerð frumvarpsins að frumvarpið hafi engan kostnað í för með sér fyrir ríkissjóð er eingöngu um tvennt að ræða: Annaðhvort munu allir þeir aðilar sem sakfelldir hafa verið síðan 1. janúar í þessum 82 málum greiða sakarkostnað sinn án þess að það sé neitt vandamál, eða þá að það tilfelli mun koma upp þar sem þessu ákvæði, sem fer væntanlega í gegnum þingið, verður beitt afturvirkt í þeim málum. Þá erum við í raun að beita afturvirkum refsiheimildum, þ.e. að gera aðför að mannréttindum þeirra sem dæmdir hafa verið, með því að búa til refsiheimild aftur í tímann, þ.e. að neyða þá til að undirgangast fjárnám og nauðungarsölu aftur í tímann vegna lagaákvæðis sem ekki var fyrir hendi þegar sakfellingin átti sér stað. Það er frekar alvarlegt mál.

Það er alveg mögulegt að þetta sé misskilningur af minni hálfu enda er ég ekki lögfræðingur. En af þessu má samt lesa, bæði af því sem stendur í greinargerð frumvarpsins og lagatextanum sjálfum, greinum frumvarpsins sjálfs, að þarna er nauðsynlegt verkfæri inn í lögin til þess að hægt sé að gera þessar lögheimtur. Ef það er ekki til staðar er ekki hægt að gera þessar lögheimtur. Ef hægt væri að gera þessar lögheimtur væri þessi leiðrétting óþörf.

Ef ég fer rangt með rökin í þessu máli vona ég að það verði leiðrétt. En þetta er alla vega tilfellið í dag. Vegna skorts á þessari lagaheimild, 221. gr., sem féll niður, er þetta óskýrt. Og jafnvel er í einhverjum tilfellum ómögulegt að framfylgja því.

Þetta er vandamál. Vandamál sem uppgötvaðist þegar í haust. En eins og komið hefur fram hafa lögin verið aðgengileg á vef Alþingis frá því 7. júní 2016, í eitt og hálft ár. Það er mjög erfitt að skilja hvers vegna það tók svona rosalega langan tíma að átta sig á þessum mistökum. Maður hefði haldið að einhver, jafnvel verjandi þessa fólks sem hlut á í þessum sakamálum, hefði kannski orðið var við að það vantaði eina undirstöðugrein þess að hægt væri að innheimta fyrir sakarkostnaði. En gott og vel, það uppgötvaðist ekki fyrr en núna. En klúðrið er til staðar, og mér finnst það ekki gífuryrt að kalla þetta klúður. Þetta er það. Þetta er heil lagagrein sem hverfur bara fyrir handvömm.

Við lögum þetta. Gott og vel. Það verður allt frábært. En í millitíðinni stendur eftir þessi eina spurning um mannréttindi sem skiptir höfuðmáli að við fáum svar við hér: Er þetta kostnaður sem lendir á ríkissjóði? Er sakarkostnaðurinn bara vandamál ríkissjóðs? Verður þá seilst í varasjóði eða annað? Eða stendur til að brjóta mannréttindi fólks aftur í tímann með þessu? Ég veit ekki hvernig skal svara þeirri spurningu, enda er ég ekki lögfræðingur. Vonandi getur einhver útskýrt þetta fyrir mér.