148. löggjafarþing — 26. fundur,  20. feb. 2018.

meðferð sakamála.

203. mál
[15:13]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Já, þetta er áhugaverður vinkill sem hv. þm. Brynjar Níelsson kemur inn á hér. Nú er ég að skoða X. kafla í lögum um fullnustu refsinga. Þar er fjallað um fullnustu fésekta, innheimtu sakarkostnaðar og framkvæmd upptöku. Vissulega eru hér til staðar ágætisgreinar sem ég er ekki með öllu kunnugur — ég þakka fyrir þá ábendingu — en mér finnst samt undarlegt að nú hefur í tvígang verið lögð aðaláhersla á fyrri hluta fyrstu efnisgreinar í 2. gr. frumvarpsins, þ.e. það er hunsað þar sem segir: „eftir atvikum með fjárnámi og nauðungarsölu.“

Nú veit ég ekki hvort ég hafi kannski talað eitthvað óskýrt, enda á ég það til, en mér þótti þetta vera kjarni málsins; að þarna væri verið að búa til ákveðna heimild til þess að innheimta kostnað „eftir atvikum með fjárnámi og nauðungarsölu“, eins og segir í frumvarpinu. Skal sá sem dæmdur er, „bera kostnað af þeim aðgerðum“ — ég hefði líka haldið að það væri frekar mikilvægt — „svo og aðgerðum vegna fullnustu refsingar og annarra viðurlaga á hendur honum, til viðbótar sakarkostnaði“.

Ég skil að þarna er eitthvert samspil milli mismunandi lagagreina. Kannski þarf lögfræðigráðu til að hafa góða tilfinningu fyrir því hvernig það samspil virkar. En ég get ekki í augnablikinu séð hvort kannski væri nóg að hafa bara heimildina til að leggja út fyrir kostnaðinum (Forseti hringir.) og jafnvel sleppa hinu í ljósi þessa X. kafla laga um fullnustu refsinga. Eða hvað? Nú verð ég vonandi skólaður til.