áfengislög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrir framsögu hans. Ég vil byrja á að taka fram að ég er tiltölulega jákvæður gagnvart þessu frumvarpi en mig langar að fá færi á að spyrja hv. þingmann út í alla vega eitt atriði ef ekki fleiri. Ekki það að ég sé með fyrir fram ákveðnar skoðanir á því, ég tek það fram, heldur langar mig bara að eiga smá orðastað við hv. þingmann þar um.
Samkvæmt frumvarpinu er hér, ef ég skil rétt, lögð að jöfnu hvers kyns framleiðsla á áfengi. Mig langar að spyrja hv. þingmann að því hvort hann hafi einhverjar áhyggjur af því eða telji að það ætti jafnvel að skilja á milli gerjunar annars vegar og eimunar hins vegar. Það sem menn hafa margir áhyggjur af er fyrirbæri sem flest okkar hér inni þekkja örugglega úr æsku en það eru svokallaðir landasalar. Það er ekki mikið um að fólk sé að selja unglingum heimabruggað krækiberjavín eða IPA-bjórinn sinn. En mig langaði aðeins að ræða þetta við hv. þingmann, ekki af því að ég hafi einhverja fyrir fram gefna skoðun heldur langar mig til að velta því upp hvort það sé rétt að það gildi ekki alveg sömu reglur um gerjun og eimun eða hvort þetta snúi bara að frelsi einstaklings til að framleiða þetta hvort heldur sem er. Læt þetta duga í bili og kem svo inn á önnur mál í seinna andsvari.