áfengislög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Reyndar get ég sagt að fyrst þegar ég byrjaði að skrifa þetta frumvarp á sínum tíma fjallaði það einungis um að heimila heimabruggun á léttum vínum. (Gripið fram í.) Gerjun, ætli það ekki. Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei bruggað áfengi og hef voða lítinn áhuga á því. Ég veit ekkert voða mikið um tæknina á bak við þetta. En þá fór ég að kynna það fyrir öðrum þingmönnum og fólki sem þekkir til, t.d. félagsmönnum Fágunar. Viðbrögðin voru á alla lund þau sömu og spurningin kom alltaf: Af hverju ertu að gera þennan greinarmun? Ég sagði: Vill maður ekki gera það? En þá var mér sagt, og ég endurtek að ég þekki ekki tæknina á bak við þetta sjálfur, að það væri eiginlega alveg marklaust. Ef maður er að brugga IPA eða eitthvað svoleiðis þá er munurinn á þessu í lögum ekki eitthvað sem verndar neinn eða skiptir máli. Ég tók því bara. Ég er sjálfur þeirrar skoðunar að lög eigi að vera einföld. Við eigum ekki að banna hluti nema við höfum skýra ástæðu til þess. Þegar ég var spurður: Hvers vegna viltu banna fólki að brugga eitthvað annað en IPA og rauðvín heima hjá sér? þá gat ég ekki svarað. Þannig að ég hugsaði: Ókei, ætli ég sé þá nokkuð á þeirri skoðun að við eigum að banna það.
En það er rétt metið hjá hv. þingmanni að vissulega er þetta einstaklingsfrelsismál að ákveðnu leyti. Ég vil samt ítreka að fyrir mér vakir aðallega að hindra einhver réttarfarsslys í kjölfar þess að skyndilega færu yfirvöld að framfylgja banninu. Í sjálfu sér hef ég persónulega ekki neina svakalega skoðun á hvort þetta eigi að vera heimilt eða ekki út frá persónufrelsissjónarmiðum í sjálfu sér. Þótt ég væri reyndar hlynntur því út frá persónufrelsissjónarmiðum. En ég myndi leggja þetta frumvarp fram án tillits til þeirra persónufrelsissjónarmiða. Ég held að það væri meira að segja orðrétt eins.