áfengislög.
Virðulegi forseti. Ég fagna hverju því tækifæri sem ég fæ til að eiga heimspekilegar umræður í pontu Alþingis og finnst allt of lítið af þeim reyndar almennt ef ég á að segja alveg eins og er.
Hv. þingmaður spyr: Hvernig getur borgarinn verið meðvitaður um hvað sé ásættanlegt að mati samfélags? Hann getur það auðvitað aldrei fyllilega. En þetta athæfi er eitthvað sem tíðkast svo víða og er gert svo ofboðslega mikið fyrir opnum tjöldum. Þetta félag, Fágun, hélt opinn viðburð á Klambratúni á sínum tíma og það komu fréttamenn og þau voru úti með bjórinn að sýna fréttamanninum. Svo komu þau hingað á Alþingi og töluðu við þingnefnd. Það er eins og fólk átti sig ekki á að athæfið sé bannað.
Mér finnst augljóst í þessu tiltekna tilfelli að fólk er almennt ekki meðvitað um það og vissulega ekki um það hversu hár refsiramminn er. Ég geri ráð fyrir að fólk sé almennt ekkert mikið að pæla í þessu en ef það gerir það þá hugsar það með sér: Það hlýtur nú að vera búið að afnema þessi lög fyrst allir eru að gera þetta og enginn kvartar undan því. Annars væri væntanlega kvartað undan því eða einhver kæmi hér upp í störf þingsins og talaði um að nú þyrftum við aldeilis að fara að taka á þessum lögum. En það er ekki þannig.
Samfélagslegu skilaboðin eru þau að íslensku samfélagi er greinilega bara sama um þetta. (Gripið fram í.) Alla vega upp að því marki sem varðar einkaneyslu. Það er alveg klárt mál. Þetta er í raun og veru uppfærsla á lögum í samræmi við það sem mér sýnist vera augljós samfélagslegur vilji.
En til að svara þessu heimspekilega þá getum við aldrei orðið algerlega meðvituð um það. Til þess eru nú lögin. Við eigum kenningunni samkvæmt að geta lesið lögin og skilið þau alveg í gegn og verið rosalega viss um réttindi okkar. Það er ekki alveg raunveruleikinn. En ég legg til að þegar við sjáum sex ára refsiramma við einhverju sem er ofboðslega algengt og fer vaxandi, ef eitthvað er, og enginn kvartar eigum við bara að laga lögin frekar en að reyna að fara í hina áttina. Því það er hinn kosturinn, að fara í hina áttina. Ég sé ekki ástæðu til að gera það og hef engan áhuga á því.