148. löggjafarþing — 26. fundur,  20. feb. 2018.

helgidagafriður.

134. mál
[16:55]
Horfa

Flm. (Helgi Hrafn Gunnarsson) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get tekið undir það með hv. þingmanni. Það er annað lagalegt samband þarna sem mér þykir öllu klaufalegra en það sem er á milli löggjafarinnar og kjarasamninga — sem er góðra gjalda vert, eflaust fín ástæða fyrir því — en það er samband milli laga um helgidagafrið og laga um 40 stunda vinnuviku. Það samband finnst mér ofboðslega skrýtið. Mér finnst það segja sína sögu að þegar þingmaður leggur til að afnema bann við bingói og einhverju slíku á heilögum dögum tiltekinna trúarbragða fari fólk að hafa áhyggjur af vinnuréttindum. Mér finnst það segja sína sögu um það hvernig vinnuréttindi fóru inn í lög um helgidagafrið. Barn síns tíma. Ég er viss um að þjóðkirkjan var á sínum tíma eina alvörustofnunin sem hafði virkilega samúð með vinnandi fólki, svo má vera, en svo er sem betur fer ekki lengur.