148. löggjafarþing — 26. fundur,  20. feb. 2018.

helgidagafriður.

134. mál
[17:03]
Horfa

Flm. (Helgi Hrafn Gunnarsson) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nei, það er alveg rétt, í þessu frumvarpi felst engin andstaða á nokkurn hátt við helgihald kristinna manna né annarra manna. Það að hv. þingmaður nefnir þetta finnst mér vera svolítið einkenni umræðunnar sem kemur alltaf að þessum þjóðkirkjumálum. Það er eins og fólk þurfi sérstaklega að taka það fram að ef það aðhyllist ekki einhver sérstök forréttindin tiltekins trúarsöfnuðar til þess að stjórna lífi annarra, þá sé það ekki árás á trúarsöfnuðinn. Það er bara alls ekki tilfellið, þetta er ekki á nokkurn hátt gagnrýni á þann trúarsöfnuð eða helgihald hans eða kennisetningar. Ég gæti alveg gagnrýnt þær, en það kemur þessu raunverulega ekkert við, ekki á nokkurn hátt og ég hyggst ekki gagnrýna þær í umfjöllun um þessi mál enda er það ekki efnið, ekkert frekar en að ég ætli að fara að gagnrýna kennisetningar einhverra annarra trúarsafnaða sem njóta ekki þeirra forréttinda að mega banna öðrum hvað þeir gera á sínum helgidögum.

Þetta er ekki árás á nokkur mann eða nokkra stofnun eða nokkur trúarbrögð að neinu leyti. En (Forseti hringir.) mér finnst það áhugavert að þurfa alltaf að taka það sérstaklega fram.