148. löggjafarþing — 26. fundur,  20. feb. 2018.

helgidagafriður.

134. mál
[17:34]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni. Þetta er vissulega athyglisvert innlegg í þessa umræðu. Hvar verðum við stödd hér á Íslandi eftir einhverja áratugi hvað varðar trúariðkun þjóðarinnar? Ef sú staða kæmi upp að kristnir væru í minni hluta í þessu samfélagi og kröfur væru uppi um að endurskoða löggjöfina á þeim forsendum þá yrði náttúrlega að taka það samtal við hina ýmsu trúarleiðtoga hinna nýju trúarbragða sem mundu vera hér í meiri hluta. Ég vona svo sannarlega persónulega að sú staða komi ekki upp að kristnir á Íslandi verði í minni hluta. En þetta er athyglisvert sjónarmið og yrði sjálfsagt farið yfir það ef sú staða kæmi upp.