148. löggjafarþing — 26. fundur,  20. feb. 2018.

helgidagafriður.

134. mál
[17:59]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og þakka flutningsmanni fyrir ákefðina og kappið sem hann hefur sýnt í ræðuflutningi sínum. Það læðist hins vegar að mér sá grunur að nú sé kátt í húsakynnum Samtaka verslunar og þjónustu og kæmi mér heldur ekki á óvart að það væri mjög kátt í húsakynnum Samtaka atvinnulífsins vegna þess að þessi félagasamtök hafa núna uppgötvað nýja bandamenn á þingi sem eru Píratar, bandamenn sem vilja reka flein í helgidagafrið á Íslandi og þar með lögbundna frídaga. Ég er viss um að þeir sleikja út um, þessir karlar núna. Það er þá ekki til einskis gert.

Þó að ég sé kristinn maður eða telji mig vera það þá ætla ég ekki að fara í eitthvert trúarbragðadebatt við hv. þingmann eða einhverja aðra hér inni, vegna þess að ég lít þannig á að hverjum manni sé frjálst að trúa því sem hann vill eða vill ekki. Mér finnst hins vegar að hv. þingmaður og flutningsmenn fleiri hafi hér gert sér kirkjuna að einhvers konar fjandmanni eða andstæðingi sem mér finnst algjörlega út í hróa hött, ég verð að viðurkenna það.

Nú er það ekki þannig að þó að ég sé kristinn maður eða telji mig vera það þá ligg ég ekki á hnjánum alla páskahelgina t.d. og mér er alveg sama þótt einhverjir séu að spila bingó meðan sjónvarpslinsurnar sjá til þeirra, svo náttúrlega nenna þeir því ekki lengur þegar það er búið.

Það er sjálfsagt mál að endurskoða lög um helgidagafrið en það er venjulega þannig að sá sem hefur vondan málstað að verja, hann segir: Þessi lög eru barn síns tíma. Ég man eftir ráðherra sem braut jafnréttislög á sínum tíma. Hann sagði: Jafnréttislögin eru bara barn síns tíma. Það eru ekki rök.

Að sjálfsögðu má endurskoða þessi lög. Það er eitt sem ég rek mig á, vegna þess að þetta mál er ekki mjög vel reifað. Það segir t.d. í greinargerðinni:

„Það skýtur því skökku við að á sama tíma og Ísland er markaðssett sem áfangastaður um hátíðirnar skuli flestir veitingastaðir og búðir lokuð á heilögustu dögunum.“

Allan desembermánuð, hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson, er verslunarfólk á Íslandi vinnandi eins og þrælar og fær ekki rönd við reist. Og það er eitt sem ég ætla að benda hv. þingmanni á og öðrum flutningsmönnum: Helgidagar snúast ekki alltaf um trú. Við höfum t.d. einn frídag sem heitir frídagur verslunarmanna. Þann dag hafa allir á Íslandi frí nema verslunarmenn. (Gripið fram í.) Allir. Þetta hefur ekkert með kirkjuna að gera eða trú eða neitt. Þetta er ekki það sem við þurfum að berjast við.

Það er eitt sem ég rak mig á sem stendur í greinargerðinni, með leyfi hæstv. forseta:

„Gerð er sú krafa að atvinnurekendur fái að ráða því sjálfir hvort þeir hafa opið á hátíðisdögum …“

(Gripið fram í.)Eins og ég segi, nú er búið að taka kampavínið inn hjá SA. (Gripið fram í.) Framhaldið er „en þó í samráði við starfsmenn og með hliðsjón af ákvæðum kjarasamninga um hvíldartíma og álagsgreiðslur“. Nú skora ég á flutningsmann að gera sér ferð inn í VR og spyrja þá ágætu menn sem þar eru hvort þeir telji að atvinnurekendur á Íslandi hafi hagað vinnutíma starfsfólks í desember í samráði við starfsmenn og með hliðsjón af kjarasamningum og ákvæðum um hvíldartíma. Ég skora á hann að gera þetta vegna þess að þetta er mergurinn málsins. Hvort við erum trúuð eða ekki skiptir ekki nokkru einasta máli í þessu sambandi. Þess vegna finnst mér að flutningsmenn þessa máls núna séu í raun að gelta að röngu tré.

Það er síðan annað hérna, mér fannst þetta dásamlegt, í greinargerðinni, með leyfi hæstv. forseta. Hann sem lögspekingur að ævistarfi, honum hlýtur að finnast þetta yndislegt:

„Eins hefur verið bent á að þjóðkirkjan stundi ekki neitt eftirlit með því hvort lögunum sé fylgt og ljóst að ekki hafi verið farið eftir þeim í hvívetna.“

Halló. Ef ég myndi mæta presti með handjárn í vasanum og kylfu við öxl, þá yrði ég fyrst hræddur. Það er ekki tilgangur kirkjunnar, hv. þingmaður, að fylgjast með því hvort einstökum lögum sé fylgt, ekki frekar en fasteignasalarnir elti okkur brjálaðir af því að þeir telja að lögum um réttindi fasteignasala sé ekki fylgt. Hvaða bull er þetta? Það er til þess bær stofnun sem fylgist með því að lögum sé haldið uppi á Íslandi, heitir lögreglan, og við ætlum að tala um hana á morgun. Það er þeirra verk.

Í greinargerðinni er vitnað til ferðamanna, að stóraukinn straumur ferðamanna geri það nauðsynlegt að þessum reglum sé breytt.

Nei, það gerir það ekki nauðsynlegt að því sé breytt. Það sem breyting á þessum reglum myndi kalla á ef þessu yrði breytt út af ferðamannastraumi, við erum að tala um viðkvæma starfsemi, við erum að tala um starfsmenn á lágmarkslaunum sem geta ekki hönd fyrir höfuð sér borið, það eru þeir sem myndu borga brúsann, vegna þess að veitingamönnum er í lófa lagið að hafa opið. Þeir eiga að borga tvöfalt kaup. Verðið á veitingastöðum á Íslandi er nú eins og þeir borgi tvöfalt kaup alla daga ársins, þannig að ég vorkenni þeim það ekki neitt.

Ég segi aftur: Mér finnst flutningsmenn á villigötum með því að vera að tala um forréttindi. Forréttindi hverra? Nú er ég í íslensku þjóðkirkjunni, en ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður sé það ekki. Hver eru forréttindi mín miðað við hv. þingmann? Mér þætti gaman að heyra það.

Ég skal líka segja eitt. Það má segja að við hér á Íslandi séum fædd inn í tvær stofnanir, það er þjóðkirkjan og RÚV. [Hlátur í þingsal.] Við getum sagt okkur úr þjóðkirkjunni, en við þurfum að drepast til þess að losna við RÚV. [Hlátur í þingsal.] Ég get sagt hv. þingmanni það að ef hann kæmi fram með tillögu eða lagafrumvarp um að ég gæti sagt mig úr RÚV án þess að vera dauður, þá værum við að tala saman. Þar skyldi ég styðja hann alveg til enda. En að líta á það þannig að þjóðkirkjan, af því að hún sé stofnun, sé af hinu vonda — ég skil bara ekki þennan málflutning.

Nú er það þannig að eitt öflugasta trúboð á Íslandi í dag er vantrúboðið, hefur sig mjög í frammi. Hefur einhver á móti því? Nei, ekki nokkur einasti maður sem ég veit um. Þeir eru bara að selja sinn lífsmáta eins og þeim er fullkomlega frjálst. Mér finnst það eiginlega öfug forræðishyggja að bera fram þetta frumvarp á þessum forsendum. Það hefur komið fram að meiri hluti íslenskrar þjóðar aðhyllist kristna trú. Sumum finnst það súrt, en það er svoleiðis. Meiri hluti þeirra sem tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá vildu hafa þjóðkirkjuákvæðið inni. Súrt? Kannski. Ég er líka lýðræðissinni, en ég lít ekki á lög og reglur eða lýðræði eins og hlaðborð þar sem maður geti valið bara grafna laxinn og sleppt hinu. Það er ekki svoleiðis. Annaðhvort býr maður í lýðræðisríki og hlítir niðurstöðu meiri hlutans, eða maður bara býr einhvers staðar allt annars staðar. Það er einfalt.

Ég viðurkenni það hreinlega, herra forseti, ég skil ekki þetta frumvarp sem er, eins og ég segi, eins og skrifað inn í höll verslunarinnar eða inni hjá Samtökum atvinnulífsins. Ég heyrði meira að segja í tveimur góðum mönnum sem komu hér upp áðan, hv. þingmönnum, mér fannst ég heyra þennan feginsandblæ. Þetta eru menn sem eru búnir að vinna lengi við atvinnurekstur og hjá Samtökum atvinnulífsins, mér fannst ég heyra svona feginsandblæ. Þeir mótmæla mér ef þeim finnst þetta rangt hjá mér. Mér fannst ég greina ákveðinn feginleika yfir því að nú væri loksins búið að finna ráð til að reka flein í hvíldarákvæði, hátíðisdaga og heilaga daga á Íslandi.

Síðan er annað sem ég skil ekki hjá hv. þingmanni og öðrum flutningsmönnum þessa frumvarps. Þeir eru ekki í þjóðkirkjunni, þeir hafa frí alla þessa daga. Er það ekki bara lúxus? Hvaða mismunun er í því? Ef hv. þingmaður og aðrir flutningsmenn þessa frumvarps færu t.d. að vinna, hvað þá? Nú vill svo til að ég vann um ellefu ára skeið með lögreglu og tollgæslu. Þar þurftu menn náttúrlega að ganga vaktir alla daga ársins alveg sama hvað þeir hétu, jóladag, 17. júní, gamlársdag og frídag verslunarmanna, einu mennirnir fyrir utan verslunarmenn sem voru ekki í fríi þennan dag. Þetta fólk gekk að sjálfsögðu á tvöföldum launum af því að það var að vinna á þessum tíma. Ég veit ekkert hvort þau voru öll í þjóðkirkjunni, ég hef ekki hugmynd um það, eða hvort þau voru voða sorrí yfir því að missa af guðsþjónustunni klukkan sex, hef ég ekki hugmynd um það. Enda skiptir það ekki máli í þessu samhengi. Það sem skiptir máli í þessu samhengi er það sem kemur fram í greinargerðinni, einn gallinn enn þá í þessum málatilbúnaði að mínu mati. Þar kemur fram, með leyfi forseta:

„Í umsögn frá biskupsstofu kom fram að kirkjuþing 2015 tæki undir ályktun aðalfundar Prestafélags Íslands frá 12. apríl 2016 um að lögum um helgidagafrið yrði viðhaldið en þau endurskoðuð.“

Nú langar mig að vita: Var eitthvað gert með þetta álit? Ég fæ ekki betur heyrt og séð en menn hafi sagt: Nei, annaðhvort drepum við þessi lög eður ei.

Ég er ekki mjög svart/hvítur í hugsun þótt ég haldi með KR. Ég trúi á grátt og aðra liti. Gerðu menn eitthvað með það að Prestafélagið segi að það sé sjálfsagt að endurskoða þetta mál. Gerðu menn eitthvað með það? Spurðu menn Prestafélagið: Hvernig viljið þið breyta þessu? Í stórum dráttum eða litlum? Merkilegum eða ómerkilegum? Er þetta eitthvað sem við getum orðið sammála um? Hvers vegna ekki? Ég tel það ekki nokkru máli til framdráttar að stilla málinu upp einhvern veginn í svona við:þeir andrúmsloft. Við þessir trúlausu á móti þeim sem segjast trúa. Ég skil þetta ekki. Ég skil ekki þörfina á þessu. Við þurfum ekki sundurlyndi, það er nóg til af því á Íslandi, alveg hellingur. Það hálfa væri of mikið.

Þess vegna eigum við að sýna hvert öðru umburðarlyndi. Mér finnst vanta allt umburðarlyndi í þetta frumvarp, ég verð að viðurkenna það. Mér verður náttúrlega bent á það ef ég hef rangt fyrir mér, ég hef það oft. En þetta er kannski það sem ég hef við þetta frumvarp að athuga.

Mér finnst ekki nema sjálfsagt að endurskoða lög á einhverju tímabili, þótt ég sé frekar íhaldssamur á það, ekkert sérstaklega þessi lög frekar en önnur. Mér finnst að lagagerð eigi að vera þannig á Alþingi Íslendinga að hún standist tímans tönn. Það er annað mál. En ég neita hins vegar þessu orðskrípi „barn síns tíma“ þegar við erum að tala um lagasetningu og lög. Ég bara neita því. Þetta er léleg afsökun fyrir að vera á móti einhverjum lögum eða tilteknum greinum laga. (Gripið fram í.)

Auðvitað breytum við því sem ekki stenst tímans tönn. Við gerum það. Við breytum við sem þarf að breyta og við teljum að þurfi að breyta hvað varðar samskipti okkar við aðra þá sem eru ekki sömu lífsskoðunar og við sjálf. En að fara að standa í harki og munnhöggvast við fólk út af lífsskoðunum þess, mér er það eiginlega ómögulegt, alveg sama hvaða trú menn aðhyllast eða hvort þeir aðhyllast enga trú eða hvernig þeir haga sínum lífsmáta. Mér finnst það ekki koma mér við eða einhverjum öðrum. Að sjálfsögðu ekki. En að rífa niður heilan lagabálk bara út af því að menn eru í fýlu út í þjóðkirkjuna, takk fyrir kærlega, herra forseti. Mér finnst það ekki nóg ástæða. Ég viðurkenni það.

Nú þykist ég vita að þetta frumvarp gangi til allsherjar- og menntamálanefndar eftir þessa umræðu og umræðan er góð og við eigum að taka umræðuna. Það er enginn hræddur við þessa umræðu, held ég, ekki sem ég veit, en mér finnst óskiljanlegt að gera ágreining um þetta.

Nú bjó hv. þingmaður, sem flutti málið áðan mjög rösklega, lengi vestan hafs. Þar er einn heilagur dagur á ári, þakkargjörðarhátíðin. Menn spila ekki einu sinni körfubolta á þakkargjörðarhátíðinni. (Gripið fram í.)Menn spila körfubolta hins vegar á jóladag, það er bara flott. En þarna hafa menn einn dag sem er þeim heilagur. Auðvitað virðum við það, en ekki hvað. Allir þeir sem fara vestur vita að þakkargjörðarhátíðin gengur út á samverustundir með fjölskyldu. Þeir sem koma hingað eiga að vita að það getur verið takmörkuð þjónusta, þótt sem betur fer sé verið að vinna bug á því, en það á ekki að vinna bug á því á kostnað þeirra sem lægst hafa laun í þessu landi. Það á ekki að beita einhverju ímynduðu frjálsræði í trúmálum og láta verkafólk borga fyrir það. Nei takk, herra forseti.