helgidagafriður.
Virðulegi forseti. Mér er skapi næst að fara aftur í ræðu til að svara hv. þingmanni en ég hugsa að einhver okkar hérna fái nóg af þessari umræðu einhvern tímann, ekki ég samt, ég er alveg til í að vera hér langt fram á kvöld ef þess þarf.
Hv. þingmaður nefndi nokkra hluti sem mig langar til að segja að séu rangir hjá hv. þingmanni. Hann sagði að umburðarlyndi vantaði í þetta frumvarp. Frumvarpið fellir niður ein lög sem fjalla um að banna skemmtidansleiki eða eitthvað svoleiðis. Er það þá ekki umburðarleysi að hafa ekki svona lög líka fyrir segjum múslima, búddista eða guðleysingja, eða aðra? Auðvitað ekki. Það er fráleitt. Þetta snýst ekki um umburðarlyndi.
Sömuleiðis segir hv. þingmaður að flutningsmenn hafi gert kirkjuna að fjandmanni. Ég nefndi þetta sérstaklega áðan. Þetta snýst ekki um kristni. Þetta snýst ekki einu sinni um þjóðkirkjuna. Þetta snýst um samband ríkis við trúarbrögð. Lög um helgidagafrið snúast nefnilega, merkilegt nokk, ekki um vinnuréttindi, heldur um trúarbrögð eins og kom svo glæsilega í ljós hjá hv. þm. Birgi Þórarinssyni áðan, þótt hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson hafi blessunarlega haldið sig frá trúarlegu umræðunni þegar kemur að því að verja þessi lög.
Svo segir hv. þingmaður að nú eigi að rífa niður lagabálka af því að menn séu í fýlu út í þjóðkirkjuna. Það er bara rangt. Ég óska þjóðkirkjunni góðs gengis. Það er mér algerlega að meinalausu að meiri hluti Íslendinga sé kristinn og í þjóðkirkjunni. Það eina sem mér finnst ekki í lagi er að við höfum ekki raunverulegt jafnræði fyrir lögum. Þessi lög eru einkenni þess. Frumvarpið snýst um það.
Mér þætti vænt um að ágætir þingmenn hættu að leggja mér orð í munn. Þetta snýst ekki um trúarbrögð, um kristni, eða skoðun mína á henni. Ég væri nákvæmlega sömu skoðunar ef ég væri kristinn, bara svo það sé sagt.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, fer fram úr mér með tímann. Hv. þingmaður talaði áðan um vinnuréttindi og allt það. Nú kemur alveg skýrt fram að það er ekki markmið frumvarpsins að skerða vinnuréttindi neins. Er eitthvað (Forseti hringir.) í lögum um helgidagafrið sem ekki má einfaldlega færa yfir í lög um 40 stunda vinnuviku? Ég spyr vegna þess að það er nákvæmlega það sem frumvarpið (Forseti hringir.) leggur til. Allt sem er í lögum um helgidagafrið sem varðar vinnuréttindi er lagt til að fari yfir í lög um (Forseti hringir.) 40 stunda vinnuviku. Hvað er eftir?