148. löggjafarþing — 26. fundur,  20. feb. 2018.

upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.

135. mál
[18:57]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er áhugaverð tillaga í sjálfu sér. Mér þykir samt alltaf athyglisvert þegar farið er að ræða verðtryggingu fjárskuldbindinga og sér í lagi bann við verðtryggingu og aukna áherslu á óverðtryggð lán að það gleymist gjarnan í þeirri umræðu að neytendur hafa fullt val í dag. Þeir geta tekið verðtryggð sem óverðtryggð lán og velja einfaldlega verðtrygginguna af því að hún hefur reynst ódýrari á velflestum tímum í samanburði við óverðtryggð lán. Bann við verðtryggingu sé ég ekki breyta miklu þar um.

Auðvitað má velta alltaf fyrir sér þegar verið er að ræða þessi mál af hverju ósköpunum ekki er ráðist að rót vandans sem er einfaldlega kostnaðurinn við myntina okkar. Vaxtamunurinn sem við búum sífellt við er 4–5% nafnvaxtamunur að staðaldri, hefur verið í raun og veru allan þann tíma sem núgildandi peningastefna hefur verið í gildi með tilheyrandi kostnaði fyrir heimili og fyrirtæki og dregur verulega úr samkeppnishæfni fyrirtækja, t.d. í samkeppni við innflutning og líka í útflutningi á önnur markaðssvæði. Það virðist ekki vera mikill áhugi á því. Það má sjaldnast ræða þennan kostnað krónunnar og af hverju í ósköpunum við höldum henni við.

Það sem ég velti hins vegar fyrir mér er orðalag bæði markmiða ríkisstjórnarinnar og þessarar tillögu. Markmið ríkisstjórnarinnar er, með leyfi forseta:

„Ríkisstjórnin mun hefja skoðun á því hvernig megi fjarlægja fasteignaverð úr mælingu neysluvísitölunnar.“

Markmið þessarar þingsályktunartillögu er „að skipa starfshóp óháðra sérfræðinga sem greini kosti og galla þess að gera breytingar á útreikningi verðbólgu og verðtryggingar“.

Mér sýnist í raun og veru gagnvart markmiðum ríkisstjórnarinnar að lausnin sé komin, það þurfi ekkert að skoða þetta neitt frekar. Hér er hægt að taka upp samræmda vísitölu neysluverðs í staðinn fyrri núgildandi vísitölu og þar með leysa þennan húsnæðisvanda.

Þess vegna spyr ég hv. þingmann: Má ekki bara (Forseti hringir.) hrinda því í framkvæmd í stað þess að það þurfi að vera að skoða þetta í nefndum fram og til baka?