148. löggjafarþing — 26. fundur,  20. feb. 2018.

upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.

135. mál
[19:04]
Horfa

Flm. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni innlegg hans. Ég hefði gjarnan viljað bæta þessu við ræðu mína áðan. Þetta er hárrétt, hagsveiflan hefur áhrif. Svo er það þannig að megináhrifaþættir á verðlagsþróun undanfarin misseri eru þróun húsnæðisverðs, til hækkunar, svo er það auðvitað gríðarleg styrking krónunnar sem kemur til lækkunar, sem mótvægi, svo að við höfum upplifað verðstöðugleika hér síðastliðin fjögur ár.

Maður veltir því fyrir sér með stöðuna á húsnæðismarkaði, með þann mikla skort sem við höfum rætt hér í þingsal, að það sé í raun réttlætanlegt þegar við reiknum þetta út sem einhvers konar fórnarkostnað af fjárbindingu að eiga húsnæði og reiknum að inn í okkar vísitölu sem ekki er annars staðar gerð, með þá óvissu sem er fram undan og þennan mikla skort. Það sé í raun og veru réttlætanlegt að það muni bara bombast inn í lán þeirra sem fjárfesta í húsnæði.

Það er alveg rétt sem hv. þingmaður kemur inn á að það hafa verið tímar uppi í okkar hagkerfi þar sem húsnæðisliðurinn kemur tímabundið til lækkunar. Ef það yrði nú hratt byggt og húsnæðisverð færi niður þá væri augljóslega ekki mikil ánægja með þá tímasetningu. Eftir stendur að ég er þeirrar skoðunar að við eigum að vera sem mest og algjörlega til samræmis við aðrar þjóðir í því hvernig við reiknum svona mælikvarða þannig að þetta sé samanburðarhæfur mælikvarði.