148. löggjafarþing — 26. fundur,  20. feb. 2018.

upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs.

135. mál
[19:06]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni framsögu hans fyrir þessari tillögu sem hluti þingflokks Framsóknarflokksins stendur að. Ég skal viðurkenna að þegar ég sá þessa tillögu datt mér í hug saga af kellingu sem ég heyrði einhvern tíma; sú hafði ekki mikið sjálfstraust. Gesti bar að garði og þegar þeir höfðu gætt sér á köku sem hún bakaði, og líkað vel, spurðu þeir: Hver bakaði þessa köku? Þá sagði hún: Ég, ef mig skyldi kalla. Þetta flaug mér í hug þegar ég sá þessa tillögu hluta þingflokks Framsóknarflokksins sem er í sjálfu sér lægsti samnefnari sem hægt er að gefa sér í þessu máli. Þetta er minnsta skref sem hægt er að stíga í þessu máli.

Hv. flutningsmaður fór yfir það að þessi tillaga væri í fullu samræmi við stjórnarsáttmálann. Það efast ég ekki um, hann er jafnloðinn og þessi tillaga. Það vekur hins vegar athygli mína að hér er bara hluti þingflokks Framsóknarflokksins að flytja þessa tillögu. Hvar eru sjálfstæðismennirnir? Hvar eru þingmenn VG? Ef þeir væru þarna líka yrði trúlega um að ræða stjórnartillögu. Eins og þetta lítur út núna er þetta bara þingmannatillaga. Menn hafa kannski sammælst um að þetta væri nógu lítið beinskeytt til að geta sloppið í gegnum nálarauga allra ríkisstjórnarflokkanna, það er hugsanlegt.

En ég verð að viðurkenna að þetta kemur svo sem ekki mikið á óvart. Framsóknarflokkurinn hefur náttúrlega dregið stutta stráið í þessum stjórnarsáttmála ef frá eru taldir þessir stólar hér á bak við mig, hverja þrjá þeir eiga. Að öðru leyti er fátt um fína drætti í stjórnarsáttmálanum sem þangað eru komnir fyrir orð og áhrif Framsóknarflokksins.

Í stjórnarsáttmálanum segir m.a., á bls. 10, með leyfi hæstv. forseta:

„Ríkisstjórnin mun hefja skoðun á því hvernig megi fjarlægja fasteignaverð ...“

Svo vill til að ég get sagt hv. þingmanni hvernig hægt er að gera það. Það er hægt að gera það með frumvarpi. Frumvarpið er mjög einfalt. Það mun koma fram hér á næstu dögum á þinginu.

Ég efast ekkert um góðan hug flutningsmanna í þessu máli. En þeim gefst þó kostur á því núna eftir einhverja daga að taka afstöðu vegna þess að Miðflokkurinn ætlar sér að gera þessa þingsályktunartillögu tilgangslausa með því einfaldlega að leggja til í lagafrumvarpi að héðan í frá skuli vísitala sem notuð er til bindingar bæði innlána og útlána miðast við vísitölu neysluverðs án húsnæðisliðar. Flóknara er það nú ekki, hv. þingmaður. Það er allt og sumt sem þarf að gera, að samþykkja þetta.

Ef þetta hefði verið gert fyrir þremur árum hefði breytingin á þeim tíma sem liðinn er, þessum þremur árum, sparað heimilum í landinu og smærri og stærri fyrirtækjum ótrúlegar upphæðir. Mér var sagt um daginn að þar sem verðtryggðar skuldbindingar heimila í landinu liggi einhvers staðar á bilinu 15–17 hundruð milljarðar, ef ég man rétt, megi leiða að því líkur að ef þetta skref hefði verið stigið fyrir þremur árum hefði það lækkað útgjöld heimila um 180 milljarða á þeim tíma. Fyrir þá upphæð má byggja nýtt þjóðarsjúkrahús tvisvar sinnum.

Ég segi aftur: Ég efast ekki um góðan hug flutningsmanna. En ég skil ekki af hverju menn stigu ekki skrefið til fulls. Ég þykist vita að menn séu að setja þetta fram, lægsta hugsanlega samnefnara eins og ég segi, til þess að geta sagt: Við stóðum við kosningaloforðið okkar. Það kann vel að vera. Þau voru nú ekki hátimbruð. En það er í sjálfu sér ekkert flókið við að gera þessa breytingu sem ég minntist á áðan. Hagstofa Íslands, sem sér um að mæla verðlag, sendir Seðlabanka Íslands í hverjum mánuði nokkrar vísitölur. Seðlabankinn dregur síðan af þeim rangar ályktanir og hefur hér uppi allt of háa stýrivexti. Það er önnur saga. En eins og fram hefur komið hjá Hagstofunni er hún stofnunin sem mælir. Það eru aftur á móti þeir sem hér eiga sæti sem taka ákvarðanir í málinu. Þeir þurfa að hafa kjark. Það er það eina. Menn þurfa að hafa kjark til að standa við það sem þeir hafa talað um árum saman.

Illu heilli var það þannig þegar ég var í öðrum flokki, eða þriðja flokki, að hann var í stjórnarsamstarfi við flokk sem ekki vildi uppfylla miklu skýrara ákvæði sem þá var í stjórnarsáttmála, þar sem talað var um að menn skyldu stíga skref í þá átt að verðtrygging yrði ekki á lánum hér til frambúðar. Við vorum bara óheppin með dansfélaga þá. Það fældi nú ekki alla frá því að taka upp hald aftur, að halda áfram að dansa við þann sama flokk. En þá komum við, alla vega á sínum tíma, við sem þá stóðum að því í þessum flokki, sterkara ákvæði inn í stjórnarsáttmála. Kannski er það vegna þess að menn hafa séð sitt óvænna og vitað að ef sterkar yrði að orði kveðið í stjórnarsáttmálanum nú myndi nákvæmlega sami hluturinn gerast aftur. Kannski voru menn að forðast það, ég skal ekkert segja um það. Ég bara veit það ekki.

En hitt er svo annað mál og ég segi það aftur: Þetta er minnsta skref sem hugsanlega er hægt að stíga nú á þeim tímum sem við lifum.

Ég komst yfir graf sem sýnir fylgni neysluvísitölunnar og neysluvísitölu án húsnæðisliðar um þó nokkuð langt árabil, alveg aftur til, ef ég man rétt, ársins 1989. Það var alveg þokkaleg fylgni milli neysluvísitölu og vísitölu án húsnæðisliðar þangað til árið 2004. Þá sker virkilega í sundur. Og telji menn nú að það sé kannski rangur tími til að kippa húsnæðisliðnum út úr vísitölunni vil ég segja: Á meðan staðan er sú að það vantar 17 þús. íbúðir hér á þessu svæði einu eru ekki líkindi til þess að húsnæðisverð í landinu lækki. Við erum á toppi hagsveiflu eins og hér hefur komið fram. Sjálfsagt eitthvað aðeins á niðurleið, kann vel að vera. En hvaða niðurleið er það þó að fram hafi komið í fjölmiðlum að ferðamönnum fjölgi ekki eins hratt og eins mikið og áður? Bíddu, er það vont? Við eigum þegar fullt í fangi með að taka á móti þeim 2,5 milljónum sem koma hingað. Þótt sú tala standi í stað, getum við ekki alveg lifað með það? Ég held það. Ég held að við séum fullherpt við að þjónusta þetta fólk og sjá til þess að það traðki ekki niður landið svo að skaði verði af eða fari sér að voða á vegum sem eru ótryggir og ekki að batna; ekki lítur það þannig út samkvæmt þeim stjórnarsáttmála sem nú er unnið eftir.

Ég held að við séum ekki í neinni hættu með það að stíga stærra og djarfara skref í þessu máli en hér er gert.

En ég segi aftur: Auðvitað skilur maður það að flokkur sem gengur til leiks með lítið á dagskránni ríður ekki feitum hesti frá stjórnarsáttmála. Það gefur auga leið. Og í því ljósi er þessi tillaga skiljanleg. En Miðflokkurinn vinnur að því að gera þessa tillögu óþarfa. Hann mun gera það með því að leggja fram frumvarp, eins og ég sagði áðan. Þá kemur í ljós hvort góður hugur flutningsmanna og annarra framsóknarmanna, hugsanlega annarra í ríkisstjórninni, stendur til þess að koma með ábyrgum og ákveðnum hætti til liðs við heimilin í landinu. Það kemur í ljós. Ég myndi náttúrlega fagna því alveg gríðarlega ef þessi flokkur manna kæmi til liðs við Miðflokkinn þegar það frumvarp kemur fram í því augnamiði að lækka skuldabyrði og skuldir heimilanna í landinu.