148. löggjafarþing — 27. fundur,  21. feb. 2018.

störf þingsins.

[15:18]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Ég verð að segja eins og er að dagskrá þingsins þessa vikuna er ekki mjög beysin. Ef við værum í fiskvinnslu væri sennilega búið að senda okkur heim vegna hráefnisskorts. Hér er eiginlega ekkert á dagskrá af hálfu ríkisstjórnarinnar. Þau fáu mál sem þar er að finna eru ýmist smávægilegar lagfæringar eða mál sem verið er að endurflytja nær óbreytt frá fyrri ríkisstjórn.

Í málefnaskrá ríkisstjórnarinnar var gert ráð fyrir að búið yrði að leggja fram 86 frumvörp eða þingsályktunartillögur í lok febrúar. Ekki lifir langt eftir af febrúarmánuði en mér telst til að frumvörp og þingsályktunartillögur frá ríkisstjórninni séu orðnar um 30, um þriðjungur þess sem áætlað var að yrði komið fram í lok febrúar.

Mér finnst áhugavert að gera smásamanburð. Í nýrri ríkisstjórn eru tveir flokkar sem gagnrýndu mjög ötullega síðustu ríkisstjórn fyrir verkleysi á fyrstu dögum hennar. Þessi ríkisstjórn er rétt tæpra 90 daga gömul en á sama tímabili voru komin fram um 60 mál frá þeirri ríkisstjórn, eða tvisvar sinnum fleiri en þessari ríkisstjórn hefur tekist að hósta upp á fyrstu 90 dögunum.

Mér þykir þetta verkleysi ríkisstjórnarinnar vera farið að verða heldur vandræðalegt. Við þurfum að horfa til þess að fram undan eru sveitarstjórnarkosningar sem þýðir að þingið fer óvenjusnemma heim þetta vorið, þó að það komi vissulega saman aftur, og einnig er fram undan hálfsmánaðar páskaleyfi þingsins. Það er ekki verið að ætla þinginu mjög langan tíma til að vinna þau 110 mál sem enn eru ókomin, samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Þetta finnst mér ekki vera vinnubrögð til fyrirmyndar.