störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar að gera að umtalsefni fund í velferðarnefnd í morgun þar sem rædd voru geðheilsa og eftirfylgni og Hugarafl, sem er úrræði sem er margverðlaunað innan lands sem erlendis, en þangað sækja u.þ.b. þúsund manns á hverju ári. Uppi eru hugmyndir um að það úrræði verði lagt niður. Þetta er einstakt úrræði fyrir geðfatlaða og fjölskyldur þeirra og líka eina úrræðið fyrir fjölskyldumeðlimi til að leita sér bata og lækningar vegna sjúkleika fjölskyldumeðlima. Þangað getur fólk komið beint inn af götunni. Það þarf ekki tilvísun eða neitt.
Það er mjög mikilvægt fyrir okkur sem tölum um að efla geðheilbrigðislækningar í landinu að við tökum ekki fallegasta blómið í garðinum og slítum það upp. Ég held að það sé mjög mikilvægt. Við í þessum sal ættum að sameinast um að koma í veg fyrir þessi stofnun, þessi þjónusta við geðfatlaða, verði lögð niður. Ég held að við höfum tekið rangar ákvarðanir. Við eigum að endurskoða það. Við eigum að vera fólk til þess að gera það. Þetta úrræði kostar 55 milljónir á ári. Það mun ekki valda okkur miklum vandræðum að sjá til þess að það geti gengið.
Ég skora á okkur öll að standa vörð um þetta fallega blóm sem hefur hjálpað svo mörgum í veikindum sínum og bágindum.