148. löggjafarþing — 27. fundur,  21. feb. 2018.

löggæslumál.

[16:23]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu. Undirtektir þingmanna fylla mig bjartsýni og trú á að það sé eindrægur vilji í þessum sal til að efla löggæslu í landinu, efla lögregluna.

Ég varð hins vegar með vonbrigðum með svör hæstv. ráðherra sem mér finnst taka þessu máli ákaflega létt. Ég get sagt hæstv. ráðherra að hluta til hvað varð um allt þetta fólk sem reynt var að fá til lögreglunnar. 10% þess eru langveik út af álagi. Eina ástæðan fyrir því að hér er ófremdarástand, því að það er ófremdarástand, eina ástæða þess að málin eru ekki komin í óefni er að við erum með afskaplega sterkt og gott fólk sem vinnur að þessum málum, sem er hugprútt og sparar sig hvergi. Við sáum það t.d. í nýlegu rútuslysi austur á landi. Þar spurðu menn ekkert um í hvaða lögregluumdæmi þeir voru, þeir tóku bara á málinu meðan þurfti.

Ég vil reyndar lýsa furðu minni á málflutningi hv. þm. Vilhjálms Árnasonar sem segir að hann hafi ekki orðið var við stuðning þingmanna í fjárlagaumræðu. Man þingmaðurinn ekki eftir því að hann greiddi atkvæði gegn vel ígrunduðum tillögum Miðflokksins um 370 milljónir til lögreglunnar í fyrra? Ungur maður, hann ætti að muna þetta. Það eru ekki nema 60 dagar síðan. Hann getur verið viss um, og hæstv. dómsmálaráðherra líka, að ef dómsmálaráðherra kemur ekki sjálf fram með „grundiga“ áætlun um uppbyggingu og eflingu lögreglunnar í landinu mun Miðflokkurinn gera það. Ég heyri ekki betur á undirtektum þingmanna í salnum nú í dag en að það verði mjög breið samstaða um að það verði gert.

Og talandi um peninga. Við erum að tala um að kannski þurfi milljarð á höfuðborgarsvæðinu til að efla löggæsluna. Ríkisstjórn sem hefur efni á að selja banka fyrir klink, sem kostar landsmenn (Forseti hringir.) milljarða tugi, hefur sko efni á því. Hún á pening. Hún hefur efni á að skjóta eins og einum milljarði eða tveimur í löggæslumálin í landinu.