mál frá ríkisstjórninni.
Herra forseti. Þetta verkleysi ríkisstjórnarinnar er að verða mjög vandræðalegt. Ég held að það sé í raun og veru orðið tímabært fyrir þessa ríkisstjórn að horfast í augu við að það þarf að endurskoða starfsáætlun þingsins fyrir þetta vorþing. Það er alveg ljóst að okkur mun ekki vinnast tími til þess að ráða fram úr þeim málum sem ríkisstjórnin hyggst leggja fram því annað tveggja þarf að endurskoða, þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar eða dagskrá þingsins, því að þetta einfaldlega gengur ekki upp. Það er algjörlega ótækt að okkur sé skammtaður örskammur tími á lokametrunum í vor til þess að afgreiða tugi mála á færibandi.
Ég er eiginlega enn meira furðu lostinn yfir því þegar maður horfir á þingmálaskrá þessarar ríkisstjórnar og sér að þar er fjöldinn allur af málum sem ýmist höfðu þegar verið lögð fram af fyrri ríkisstjórn á fyrra þingi eða voru tilbúin til framlagningar af hálfu fyrri ríkisstjórnar og virðist ekki vera mikill ásetningur um að breyta. Af hverju í ósköpunum fá þessi mál ekki að koma fyrir þingið? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)