mál frá ríkisstjórninni.
Herra forseti. Það er einkennilegt fyrir mig sem nýjan varaþingmann að koma inn á hið háa Alþingi og upplifa slíka málafæð. Kannski má segja að það sé ekki magnið heldur gæðin. En ég velti nú aðeins fyrir mér þeim málum sem við höfum tekið til skoðunar hér. Þá finnst mér töluvert vanta af stórum málum sem skipta verulegu máli fyrir samfélagið. Þá horfi ég sérstaklega til sveitarstjórnarstigsins þar sem ég starfa einnig. Ég hef verulegar áhyggjur af því stefnuleysi sem við horfum upp á hér. Mikilvægar stefnur og áætlanir virðast ekki ætla að koma fram fyrir kosningar. Það er algjörlega ótækt. Ríkisstjórnin verður að sýna á spilin fyrir þann tíma. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)