148. löggjafarþing — 28. fundur,  22. feb. 2018.

kaup vogunarsjóða í Arion banka.

[10:38]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Kaup vogunarsjóða á hlut ríkisins í Arion banka eru flétta sem er úthugsuð af færustu sérfræðingum. Upphafið er samþykkt hluthafafundar Arion banka um kaup á eigin bréfum. Síðan tilkynna hluthafar ríkinu að þeir vilji virkja hluthafasamkomulagið frá 2009 og kaupa hlut ríkisins á gjafverði. Samþykkt hluthafafundar um kaup á eigin bréfum gaf vogunarsjóðunum heimild til að nota peninga bankans til að kaupa bréfin. Þeir þurfa því ekki að leggja út fyrir kaupunum. Þetta er snilld númer eitt.

Þegar búið er að kaupa ríkið út geta vogunarsjóðirnir gert það sem þeir vilja við eigur bankans. Hlutur þeirra stækkar og verður verðmætari. Þetta er snilld númer tvö.

Síðan hefjast þeir handa við að búta bankann niður, selja verðmæt dótturfélög út úr bankanum, eins og Valitor og Stefni – sjóðstýringu. Stefnir er verðmætasta dótturfélag bankans. Viðskiptablaðið sagði í dag að eignir bankans væru afar verðmætar. Þegar þetta er í höfn stendur eftir beinagrindin sem lífeyrissjóðirnir kaupa síðan. Þetta er snilld númer þrjú.

Allt er þegar þrennt er. Hæstv. fjármálaráðherra er gæslumaður ríkissjóðs í umboði Alþingis. Sérðu ekki veisluna? Nú skal ég segja hæstv. ráðherra hvað hann á að gera. Hann lætur ríkið í stjórn bankans boða til hluthafafundar strax þar sem eitt mál verður á dagskrá, þ.e. að afturkalla heimild bankans til að kaupa eigin bréf, í því augnamiði að rannsaka hvort þetta standist lög, rannsaka hæfi stjórnenda og rannsaka hvaða áhrif það hefur á fjármálakerfið að taka svona mikið eigið fé út úr bankanum.

Ég er þess fullviss að vogunarsjóðirnir munu afturkalla kauprétt á hlut ríkisins þegar þeir sjá að þeir þurfa að borga fyrir hann úr eigin vasa en ekki með fé bankans. Ég vil því spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Munt þú beita þér fyrir því strax að kalla saman hluthafafund, láta afturkalla heimild bankans til að kaupa eigin bréf og rannsaka málið í kjölinn?