skerðingar í lífeyriskerfinu.
Virðulegur forseti. Það sem ég ætlaði að koma inn á í svari mínu var að ríkisstjórnin er nú að hefja vinnu og samtal við hagsmunahópa, Öryrkjabandalagið, Þroskahjálp, um það hvernig við endurskoðum almannatryggingakerfið og tökum m.a. á krónu á móti krónu skerðingu.
Í þeirri tímaáætlun sem við setjum okkur, sem ætlunin er að ljúki í maímánuði á þessu ári, á að ræða hvernig við förum með skerðingar í almannatryggingakerfinu, hvernig við endurskipuleggjum almannatryggingakerfið samhliða því sem við innleiðum starfsgetumat.
Það er alveg rétt að þetta tengist ekki, en tengist þó vegna þess að með breyttu kerfi og endurhæfingar- og starfsgetumatskerfi er ætlunin að ræða hvernig við bætum kjör þessara hópa. Komin (Forseti hringir.) er tímaáætlun um það. Ég vonast til að þeirri vinnu ljúki nú á vorþingi þannig að næsta haust sé hægt að leggja fram (Forseti hringir.) frumvarp sem tekur á nýju almannatryggingakerfi fyrir þennan hóp. Ef það á að takast þurfum við öll að standa saman að því og ég fagna þeirri samstöðu sem hv. þingmaður sýnir hér gagnvart því.