rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegi forseti. Mig langar aðallega til að spyrja um tvö atriði, annars vegar stærðina á hylkjunum og hins vegar hversu bundin við erum af Evrópulöggjöfinni varðandi stærðirnar, bæði á hylkjunum sem eru til sölu og hylkjunum sem eru í rafrettunum sjálfum, þeim tveimur millilítrum sem þau rúma. Það hljómar að einhverju leyti eins og við værum að setja lög um að bílar mættu bara vera með ákveðið stóran bensíntank o.s.frv. Mig langar að fá að vita hvert svigrúm okkar er þar, því að oft er svigrúm í Evrópulöggjöf hvað það varðar.
Í 5. gr., varðandi öryggið, rekst ég helst í það að stærð hylkjanna getur verið öryggisatriði, svona lítil hylki eru öryggisvandamál. Þau eru það lítil að það er jafnvel hægt að gleypa þau. Þannig að það er líka öryggisatriði að vera ekki með of lítil hylki sem erfiðara er að setja barnalæsingar á o.s.frv. Ég velti fyrir mér hvort ákveðin skörun sé þarna á milli sem trufli.
Ef markmið þessara laga er ekki að leggja stein í götu neytenda þá finnst mér þetta jafnvel skarast aðeins, að þarna sé í raun verið gera fólki erfiðara fyrir varðandi aðgengi, að frumvarpið hindri þá aðgengi fólks að vörunni frekar en annað.
Í 8. gr. er fjallað um innihaldsefnin. Þar er tekið fyrir að hægt sé að nota nokkurn veginn öll önnur efni í rafrettunni, sem er þó fjölbreyttara tæki en alla vega sígarettan. Það má vel vera að þetta sé mjög góð aðferð til að taka inn vítamín. Ég veit ekki hvort einhver myndi vilja reykja t.d. lýsi, en mér dettur í hug eitthvað svipað. Þetta getur verið mjög skilvirk leið til þess að koma góðum efnum til skila. Kemur eitthvað í veg fyrir það?