rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Herra forseti. Ég ætla aftur að taka fram að ég hef ekkert á móti því að settar séu reglur um rafrettur. Mér fannst áhugavert það sem heilbrigðisráðherra nefndi, að við ættum kannski að greina hvað við höfum yfir höfuð einhvern möguleika á krukka í og hvað ekki. Ég held að það sé grundvallaratriði. Kannski væri best að Evrópulöggjöfin kæmi þannig til nefndanna.
Síðan getum við farið þaðan í að gera umbætur. Ég virði sjónarmið hæstv. heilbrigðisráðherra og að það er hennar hlutverk að vera dálítið „strikt“ og varkár. Ég er sammála henni, held ég, þegar kemur að frelsinu, að það er flókið hugtak. Það getur auðvitað falist talsvert frelsi í að verja okkur fyrir hættulegum hlutum. Ekki bara gegn reykingum heldur líka að beina okkur yfir í hættuminni hluti. Það er rétt sem fram kemur hjá hv. þm. Halldóru Mogensen, að breska lýðheilsustofnunin er farin að láta til sín taka og talar um að rafrettur séu 95% hættuminni. Nikótín er í sjálfu sér nefnilega ekki svo rosalega hættulegt efni þó að það sé eflaust ekki gott. Mig minnir að komið hafi tilmæli frá bresku lýðheilsustofnuninni um að það ætti t.d. að vera sérstakt rými í sjúkrastofnunum fyrir „veip“ en ekki tóbak.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún hafi kynnt sér þær rannsóknir og þessi tilmæli bresku lýðheilsustofnunarinnar. Er hún yfir höfuð ekki sammála mér um að eins góð og nauðsynleg og þessi löggjöf er eigi markmið hennar einmitt að vera að gera þetta að raunverulegum valkosti við tóbak og beina fólki frekar í þetta neysluform en það?