148. löggjafarþing — 28. fundur,  22. feb. 2018.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

202. mál
[11:46]
Horfa

Una Hildardóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða ræðu. Ég vil benda á eitt sem varðar heimild til þess að veipa hvar sem er. Nú á ég lítinn bróður sem er með astma og tekur strætó á hverjum einasta degi til og frá menntaskóla og kvartar reglulega yfir því að það eru aðrir að nota rafsígarettur í almenningssamgöngum. Þetta hefur veruleg áhrif á lífsgæði hans, möguleika hans til að anda og hann kvartar ofboðslega mikið yfir óþægindum í lungum.

Það virðist eins og þingmaður hafi mjög mikla þekkingu á rafrettum og þessu málefni og ég vildi spyrja út í eitt fyrirbæri sem er nikótínbætir. Í 7. gr. er talað um áfyllingarvökva, en núna er hægt að fara í næstu búð sem selur rafrettur og kaupa nikótínbæti sem er hreint nikótín sem er ekki beint áfylling heldur einungis leið til að bæta nikótínmagn í vökva.

Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður telji að greinin komi í veg fyrir sölu á þessu eða ekki, af því að þarna er ekki um áfyllinguna sjálfa að ræða.