148. löggjafarþing — 28. fundur,  22. feb. 2018.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

202. mál
[11:48]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Mig langar til að skýra það að ég talaði aldrei um að mér fyndist að það ætti að leyfa veip hvar sem er innan húss. Ég velti því bara fyrir mér hvort mögulega sé verið að takmarka það aðeins of mikið. Ég geri mér fulla grein fyrir að þetta á ekki heima alls staðar. Leikskólar, grunnskólar og framhaldsskólar eru augljóslega staðir þar sem er í lagi að takmarka veipreykingar.

Svo snýst þetta líka bara um almenna skynsemi og kurteisi, að spyrja fólk í kringum sig hvort það sé í lagi þeirra vegna að veipa. Ef fólk er með astma eða hefur eitthvað á móti því er maður náttúrlega ekki með einhvern ruddaskap. Það er alveg hægt að treysta fólki til að vera skynsamt og kurteist, að einhverju leyti alla vega.

Varðandi spurninguna um þennan nikótínbæti þá held ég reyndar að hv. þingmaður sé betur að sér í veipmálum en ég hvað þetta varðar. Ég veit það ekki sjálf og þekki þetta bara ekki og hef ekki rýnt í þessa grein laganna með þetta í huga. Ég get því miður ekki svarað þessu. En það væri mjög áhugavert að fá úr þessu skorið.