148. löggjafarþing — 28. fundur,  22. feb. 2018.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

202. mál
[12:08]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka afar góða umræðu um þetta mál, umræðu sem tekur á ýmsum hliðum og ég vil sérstaklega þakka hv. þm. Rósu Björk Brynjólfsdóttur fyrir að taka hér upp með skýrum hætti við lok umræðunnar forvarnaþáttinn og fræðsluþáttinn sem hefur ekki verið eins mikið ræddur í þessari umræðu að öðru leyti sem auðvitað er gríðarlega mikilvægur.

Ég vil vegna þess sem hefur komið fram í umræðunni almennt segja að í fyrsta lagi á löggjöf sem við setjum á hverjum tíma að vera byggð á bestu fáanlegu upplýsingum. Þannig á það að vera. Þess vegna eigum við ekki að falla í þá gryfju að handvelja þær rannsóknir sem þjóna okkar skoðunum. Það er enginn vandi. Það er enginn vandi að finna rannsóknir sem styðja nánast hvaða afstöðu sem er í þessu efni eins og öðrum.

Þess vegna er mikilvægt að halda því til haga að þegar fyrra frumvarp kemur fram eru lykilaðilar í samfélaginu sem hafa með þessi mál að gera, embætti landlæknis, Krabbameinsfélagið, Læknafélag Íslands og fleiri slíkir aðilar, einróma um mikilvægi þess að ná utan um þennan þátt með löggjöf. Það sama gildir um Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina. Hér hefur sérstaklega verið fjallað um þann tíma sem liðinn er frá því að regluverkið var smíðað á sínum tíma. Afstaða Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um ýtrustu varúð stendur. Hún er óbreytt. Það er auðvitað eina leiðin fyrir ábyrgan löggjafa á hverjum tíma að gæta að slíku.

Hins vegar vil ég segja, af því að ég þakkaði sérstaklega fyrir umræðuna, að ég vil biðja þingmenn um að koma ekki upp í ræðustól og fullyrða að hér sé verið að banna veip. Það er ekki verið að því. Að halda slíku fram eru rangfærslur.

Rafrettur eru leyfilegar fyrst eftir þessa löggjöf því að eins og staðan er núna fellur þetta utan við regluverkið. Núna erum við að tryggja viðunandi neytendavernd fyrir þá sem þennan kost velja, í fyrsta skipti.

Ég tek undir mikilvægi þess að hlustað sé á þá sem nota rafrettur og ekki síst fyrir stórreykingarmenn sem hafa þarna fundið leið til að losna undan tóbakinu. Ég bið því fólk sem vill mildari löggjöf, meira frjálslyndi eða hvað það er kallað, um að drepa ekki umræðunni á dreif með fullyrðingum um að verið sé að banna veip með þessu frumvarpi. Það er rangt. Það er óþarfi í heiðarlegum og opnum skoðanaskiptum að nesta sig með rangfærslum. Það á að vera þannig.

Hins vegar finnst mér það kannski standa upp úr eftir þessa umræðu almennt hversu mikilvægt það er fyrir okkur hér á þinginu, og þá er ég að tala sem þingmaður, að við séum með augun skýrar á því að hvaða leyti við lútum Evrópulöggjöf og að hvaða leyti við getum nýtt okkur þann sveigjanleika sem fyrir hendi er hér á landi.

Það koma ítrekað fram í þessari umræðu efasemdir um styrkleika, magn, stærðir á umbúðum o.s.frv., að það sé nestað með skynsamlegum rökum. Hér er farið með gamanmál um litlar vodkaflöskur og þrjár sígarettur í pakka o.s.frv. Þessi partur er í Evrópureglunum. Við getum alveg rætt það að þetta sé tóm vitleysa, eitthvað sem við viljum alls ekki hafa, en við skulum þá ræða það annars staðar þar sem við getum mögulega haft einhver áhrif á það. Við getum rætt það en skulum ekki láta eins og við getum breytt því hér.

Hins vegar eru þættir sem við getum haft áhrif á og hafa verið nefndir, m.a. það hvar má neyta vörunnar. Við getum haft áhrif á það, haft á því mismunandi skoðanir. Hér legg ég til tiltölulega stranga nálgun. Það er nálgun sem líka er farin í Noregi, í Finnlandi. Danir segja að veitingahúsaeigendur ákveði þetta sjálfir. Það er önnur leið. Það hefur ekki verið stemning fyrir því hér að færa þá ábyrgð yfir á veitingahúsaeigendur. Það kann að vera að velferðarnefnd finni einhver önnur svör við þeirri spurningu.

Aldurstakmörkin eru annað sem við ákveðum hér, hvernig þau eru í lögunum. Þá vil ég vísa sérstaklega til þess sem hv. þm. Rósa Björk Brynjólfsdóttir talar um, forvarnaþáttarins. Fræðslan, hún er líka innanlandsmál. Það er okkar ákvörðun, það er ekki inni í Evrópulöggjöfinni, að við viljum hafa fræðslu. Viljum við það ekki? Viljum við sleppa því? Draga úr því? Hafa meira af því? Það er eitthvað sem við getum gert.

Hvar er eftirlitið haft? Hvar setjum við eftirlitið? Við erum skyldug til að vera með eftirlit einhvers staðar með framkvæmd laganna. Viljum við hafa það hjá ÁTVR? Nei, sennilega ekki. Hjá Lyfjastofnun? Ja, það gæti verið. Hér er lagt til að það sé hjá Neytendastofu vegna þess að þetta sé ekki sá umbúnaður sem er um lyf á markaði. Það er eitthvað sem nefndin getur fjallað um og rætt.

En grundvallaratriðið er þetta: Það er samræmt regluverk í Evrópu sem við erum partur af sem aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu. Það undirgöngumst við með löggjöf. Það er mikilvægt að við á Alþingi séu algerlega meðvituð um hvaða svigrúm hið íslenska þing hefur til þess að hafa áhrif á slíka löggjöf. Ég treysti því að velferðarnefnd haldi vel á því efni, kalli eftir bestu fáanlegu upplýsingum á hverjum tíma og haldi staðreyndum til haga í þeirri umræðu.