148. löggjafarþing — 28. fundur,  22. feb. 2018.

úttekt á stofnun vestnorrænna eftirskóla.

116. mál
[12:38]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég flyt fyrir hönd Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins tillögu til þingsályktunar á Alþingi í dag.

Markmið Vestnorræna ráðsins er að starfa að hagsmunum Vestur-Norðurlanda, gæta auðlinda og menningar Norður-Atlantshafssvæðisins, fylgja eftir samvinnu ríkisstjórna og landsstjórna Vestur-Norðurlanda, auka samstarf innan norrænnar samvinnu og vera þingræðislegur tengiliður milli samvinnuaðila innan Vestur-Norðurlanda og annarra fjölþjóðlegra hagsmunahópa og ríkjasamtaka.

Í starfi sínu í Vestnorræna ráðinu leitast þingmenn við að ná markmiðum sínum með ályktunum og tilmælum til ríkisstjórna og landsstjórna með virkri þátttöku í norrænu samstarfi, samstarfi við aðra aðila innan vestnorræns samstarfs, samvinnu við norðurskautsstofnanir og samtök og skipulagningu á ráðstefnum og fundum.

Vestnorræna ráðið hefur ályktað um ýmis mál, þar á meðal umhverfis- og auðlindamál, aukið menningarstarf landanna og skóla- og íþróttasamvinnu, svo fátt eitt sé nefnt. Ályktanir Vestnorræna ráðsins eru lagðar fram á Alþingi í formi þingsályktunartillagna. Í dag verða lagðar fram hér fimm þingsályktunartillögur. Nokkur töf hefur verið á því að tillögur hafi verið fram bornar m.a. vegna hræringa og breytinga í íslensku stjórnmálaumhverfi.

Á þskj. 185 er að finna tillögu til þingsályktunar um úttekt á stofnunum vestnorræna eftirskóla. Mæli ég nú fyrir henni fyrir Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins. Hún hljóðar á þessa leið:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta gera úttekt á því hvernig hægt sé á hagkvæman hátt að stofna vestnorræna eftirskóla á Grænlandi, í Færeyjum og á Íslandi.“

Í greinargerð með tillögunni segir að tillagan sé lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 2/2016 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 22. ágúst 2016 í Qaqortoq á Grænlandi.

Vestnorræna ráðið hefur beitt sér fyrir því að íbúar Vestur-Norðurlanda öðlist aukna þekkingu á samfélögum hver annars og hefur m.a. í samstarfi við sveitarfélög og ríkisstjórnir haldið vestnorræna daga þar sem hvert land hefur staðið fyrir viðburðum sem miða að því að fræða almenning um hin löndin.

Vestnorræna ráðið telur mikilvægt að stofnaðir séu skólar sem stuðli að því að ungmenni alist upp með vitund um vestnorrænu löndin og íbúa þeirra og jafnframt að ungmenni á Vestur-Norðurlöndum kynnist og fræðist um menningu og tungumál nágrannalandanna.

Hægt er að byggja á fyrirkomulagi danskra eftirskóla. Þetta hugtak, eftirskóli, hefur verið þýtt beint úr dönsku. Við höfum ekki náð að finna annað íslenskulegra orð en það, en þessir skólar eru þekktir á Grænlandi og í Færeyjum. Á Íslandi er ekki algengt að ungmenni fari í eftirskóla, en hefð hefur verið fyrir því síðan á sjöunda áratugnum að grænlensk ungmenni stundi slíkt nám í Danmörku. Einnig hafa verið stofnaðir tveir eftirskólar á Grænlandi, þ.e. í Qasigiannguit og Maniitsoq. Nemendur þar eru á aldrinum fjórtán til sautján ára. Ungmennin upplifa þar nýja hluti, búa sig undir menntaskólanám eða annað nám og kynnast því að vera að heiman og læra að bjarga sér sjálf, þjálfast í félagsfærni. Hið sama á við um Færeyjar, en þaðan fara ungmenni oft í eftirskóla í Danmörku að loknum grunnskóla eða taka síðasta ár grunnskólans þar.

Fyrirkomulag námsins í hverju landi ætti að byggjast á menningu og tungumáli þess lands enda er meginmarkmiðið að miðla þessum þáttum til nemenda.

Skólakerfi vestnorrænu landanna eru að sumu leyti ólík. Það þarf því að hafa samráð um fyrirkomulag eftirskólanna í löndunum þremur og taka tillit til þessa munar þegar og ef þessi tilmæli verða að veruleika.

Herra forseti. Ég mæli hér með fyrir þessari tillögu og óska henni brautargengis í nefndarumfjöllun sem væntanlega verður í utanríkismálanefnd.