sveitarstjórnarlög.
Virðulegi forseti. Ég greip orð hv. þingmanns á lofti þar sem hann sagði að þarna væri verið að beina frumvarpinu beinlínis að einu sveitarfélagi. Ég er nú nýr í þessari pólitík og get ekki séð það. Lögin eru þannig að það er niðurnjörvað hversu margir fulltrúar í sveitarstjórn eiga að vera miðað við fjölda íbúa, þ.e. mjög nákvæmlega. 7–11 undir 10.000, 11–15 fyrir sveitarfélög undir 50.000, 15–23 fyrir 100.000 og undir og síðan 23–31 fyrir sveitarfélög sem eru fjölmennari en 100.000 íbúar. Mér finnst þetta vera afskaplega mikil forsjárhyggja. Ég ætla ekkert að fara að blanda mér í rifrildi um ætlaðan slæman rekstur Reykjavíkurborgar eða Reykjanesbæjar.
Ég er flutningsmaður á þessu frumvarpi. Ég tel að sveitarfélögin eigi almennt að ráða þessu sjálf. Ef eitthvert sveitarfélag vill hafa 11 fulltrúa eða 15 eða hvað sem þeir eru margir ákveði þau það bara sjálf. Ég get ekki séð nein rök fyrir því að ríkisvaldið sé að skipta sér af ákvörðunum sveitarfélaga. Af hverju geta þau ekki ákveðið þetta sjálf? (Gripið fram í.)Er þetta eitthvert vandamál? Þau ákveða það sjálf. Óska sveitarfélög eftir því að við ákveðum þetta fyrir þau? Það held ég alls ekki. Best að þau ákveði þetta sjálf og ráði þessu sjálf.