sveitarstjórnarlög.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður flutti hér ágætt andsvar. Mig langar samt á þeim stutta tíma sem ég hef að fara aðeins í grunninn að málinu.
Af hverju voru menn að ræða fjölda sveitarstjórnarfulltrúa í heildarendurskoðun á sveitarstjórnarlögunum? Nú ætla ég ekki að tala fyrir alla, alls ekki. Þau sjónarmið hafa vissulega heyrst, og hv. þingmaður þekkir það örugglega betur en ég því að hann tók þátt í þeirri vinnu í gegnum Alþingi, að það sé ekki endilega skynsamlegt að fjöldi fulltrúa í sveitarstjórnum verði kosningamál, eins og sumir hafa reynt að gera það að.
Hv. þingmaður hlýtur að kannast við að sum sveitarfélög hafa beinlínis talað um að það sé skynsamlegt að það sé tafla sem segi að ákveðið margir íbúar séu á bak við hvern fulltrúa. Að það sé ekki alltaf þannig að sá sem eigi kvölina eigi völina, eins og hv. þingmaður orðaði það. Það eru sjónarmið sem eru uppi og voru uppi þá. Ég ætla ekki að tala fyrir öll sveitarfélög, en við skulum ekki láta eins og þetta sé ekki þannig. Hv. þingmaður kom hér inn á að þau geti ákveðið grunninn að miklu leyti sjálf, að því að farið var yfir höfuð að ræða þessi mál.
Nú má vel vera að sveitarfélögin vilji eiga völina og kvölina og að þau vilji geta ákveðið sjálf, en við getum ekki gefið okkur það í þessari pontu. Við verðum að ræða við sveitarfélögin um hvort þau hafi skipt um skoðun á þessum tæpu sjö árum, sex og hálfu, sem liðin eru frá því að samkomulag náðist um heildarendurskoðun og þar með talið fulltrúatöfluna.