148. löggjafarþing — 28. fundur,  22. feb. 2018.

sveitarstjórnarlög.

190. mál
[15:06]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Smára McCarthy andsvarið.

Ég get ekki annað en fagnað því að í prinsippinu erum við hv. þingmaður sammála um þann sjálfsákvörðunarrétt sem þetta fjallar um. Málið fjallar um að aflétta þeirri kvöð að það sé lögbundið hver fjöldi fulltrúa í hverju sveitarfélagi fyrir sig á að vera. Nú eru sveitarfélögin misjöfn. Hér hefur verið mikil umræða um rekstur þeirra, sem ég tel eðlilegt að komi inn í umræðuna en vil þó ekki sjálfur blanda því í málið. Umhverfi sveitarfélaga er misjafnt. Það getur verið misjafnt hver væri „æskilegur“ eða „réttur“ fjöldi fulltrúa. Ég held að sveitarfélögin séu langbest til þess fallin að ákveða það. Það er í prinsippinu hvernig ég horfi á þetta mál.

Varðandi það að hv. þm. Jón Gunnarsson sé 1. flutningsmaður að frumvarpinu hefði ég í þessu sögulega samhengi, bæði að Sjálfstæðisflokkurinn gerði miklar athugasemdir við nákvæmlega þetta atriði á sínum tíma og hv. þm. Jón Gunnarsson var samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra með þetta mál, getað spurt minn ráðherra af hverju hann lagði þetta ekki fram. Ég gerði það ekki. Mér fannst þetta eðlilegt, enda er þingmönnum sem betur fer frjálst að leggja fram hvaða mál fram sem er. Þannig liggur í þessu máli.

Ég ætla í lokin, afsakið, hæstv. forseti, að ég fer rétt fram yfir tímann, að taka undir með hv. þingmanni um þær takmarkanir við 2.000 íbúa, það er sjálfsagt mál að skoða það í nefnd að gefa (Forseti hringir.) þetta alveg frjálst og leggja það í hendur sveitarfélaganna.