fjárfestingar í rannsóknum og þróun.
Herra forseti. Þetta er mjög gild spurning enda er ég sjálfur alltaf mjög á tánum gagnvart handahófskenndum tölum sem fólk kann að bera fram. Ástæðan er hreinlega sú að við miðum við hámarkið sem við höfum náð í rannsóknum og þróun, að vísu 0,01 prósentustigi lægra en það, samkvæmt þessu mati þó svo að það hafi hugsanlega verið ofmetið í fortíðinni. Við höfum áður náð 2,81% samkvæmt mati, sem kann að hafa verið ofáætlað. En gott og vel, við stílum inn á það að gera í það minnsta jafn vel og við höfum sýnt að við höfum getað gert áður.
Vissulega finnst mér sjálfum mjög skrýtið að miða við hlutfall af vergri landsframleiðslu að hluta til vegna þess að það hefur margsinnis verið sýnt fram á það að verg landsframleiðsla er fyrst og fremst mælikvarði á breytingar á peningamagni í umferð og hefur í rauninni afskaplega lítið með raunverulega framleiðslu eða efnahagsleg umsvif landa að gera. En ástæðan fyrir því að við kusum samt að fara þessa leið er fyrst og fremst sú að þetta er mælikvarðinn sem OECD miðar við, þetta er mælikvarðinn sem flest lönd miða við.
Eins og ég sagði í framsögunni er markmiðið svo sem ekki að geirnegla einhverja tiltekna tölu, heldur bara að hvetja menn áfram og ekki síst kannski í ljósi þeirrar nýsköpunaráherslna sem birtast í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að ýta undir það að við komumst í það minnsta í þá stöðu að verða jafn góð og við höfum verið áður. En ef það væri hægt að miða við t.d. heildarfjármálaumsvif, að þau yrðu svo og svo margir milljarðar á ári, væri það kannski (Forseti hringir.) hið besta mál líka. En þetta er bara mælikvarðinn sem við höfum.